Vikan og fleira
Gleymdi alveg að segja ykkur frá einu. Meðan Hildur og Guðjón tengdó voru hjá okkur, fórum við út í eyju hér skammt frá sem heitir Catalina. Við fórum yfir með bát frá Long Beach og tók ferðin um klukkutíma. Við eyddum deginum þarna úti og fórum með bátnum yfir aftur um 9 leytið um kvöldið. Þetta var paradís get ég sagt ykkur. Þetta var eins og að koma á ítalska eyju í Miðjarðarhafinu. Þarna var lítill flói og fólk lagði bátunum sínum hér og þar í flóanum. Glæsileg sumarhús voru í hlíðunum umhverfis flóan og nóg hægt að gera. Við skelltum okkur í kajaksiglinu með Halldór, leigðum okkur hjól og hjóluðum þarna um (Atli og Halldór voru á svona tveggja manna hjóli, ferlega sætir) og röltum í sæta bænum þeirra. Borðuðum úti á yndislegum ítölskum veitingastað áður en við héldum aftur upp á meginlandið. Bannað er að fara á bílum út í eyjuna vegna viðkvæms gróðurlífs, einungis nokkrir bílar eru á eyjunni og eru þeir í eigu eyjaskeggja. Fólk ferðast yfirleitt á golfbílum eða hjólum þarna um en þetta allt er hægt að leigja á eyjunni. Ferlega krúttlegt!
Hildur og Guðjón fóru svo heim á föstudaginn var og erum við nú orðin ein í kotinu á ný! Alltaf pínu einmanalegt þegar fólk fer svona heim en maður verður víst bara að bíta á jaxlinn og láta sig hafa það. Við erum búin að hafa það rosalega fínt þessar tvær vikur og allir hafa skemmt sér æðislega vel.
Fórum á ströndina í gær og fékk ég loksins að sjá Halldór "surfa" á "brimbrettinu" sínu. Hrikalega krúttlegt og hann er algerlega óstöðvandi. Hann á sko eftir að detta í þennan pakka þegar á líður og hann verður nógu stór til að fara þarna út í alvöruna!
Atli fór til Florida í morgun og kemur ekki fyrr en á fimmtudaginn. Við Halldór hittum Beggó og krakkana í dag og fórum í hjólatúr á höfninni, fengum okkur ís og fórum þar á eftir í parkinn með krakkana.
Frétti af næturfrosti heima um daginn! Þetta er flótt að gerast. Hér er ennþá sumar og sól auðvitað. Held samt að sundlauginni okkar verði lokað eftir septembermánuð. Það er ekkert nema gamalt fólk hér sem nennir ekki að nota sundlaugina og vilja þeir því ekki eyða peningum í að hafa hana opna allt árið. Meira liðið. Við og kannski 2 aðrar fjölskyldur notum sundlaugina af 30 húsum sem hafa aðgang að henni. Þetta fólk kann ekki að njóta þess að búa í Californiu! Þó við kunnum mjög vel við okkur hér í þessu hverfi neyðumst við til að finna okkur annan bústað þegar leigan rennur út. Það eru engir krakkar hér í kring, ekki 1 krakki. Ferlegt fyrir Halldór að hafa engann hér í kring til að leika við. Leigan rennur út 1 febrúar þannig að við fórum á stúfana þegar nær dregur og finnum okkur eitthvað annað á barnvænni stað!
Að lokum, er að reyna að koma myndamálunum á hreint á netinu. Það virðist vera búið að loka fyrir frían inngang þar sem ég hef hóstað myndirnar og þarf ég því að fara að vinna nýjan vef. Læt vita þegar ég kem þessu í gagnið.
Til hamingju með afmælið Soffa mín! Náði ekki á þig í dag, prófa aftur á morgun.
Luv,
E

1 Comments:
Takk fyrir afmæliskveðjuna Ella mín!!
Allt fínt að frétta annars, hér er orðið verulega haustlegt,laufin að falla af trjánum og haustlitirnir að láta sjá sig. Alltaf eitthvað svo sjarmerandi við haustið finnst mér þrátt fyrir rok og næturfrost, og gott að geta farið að kveikja aftur á kertum á kvöldin!!
Bkv, Soffa
By
Nafnlaus, at 6:45 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home