Hitt, nýtt afmælisbarn og þetta
Það er allt með kyrrum kjörum hér í Californíu. Atli fór áðan til Palm Springs í vinnuferð og kemur aftur á miðvikudagskvöldið. Við Halldór verðum því bara eitthvað að dúlla okkur næstu daga tvö.
Helgarfríið byrjaði auðvitað á því á föstudaginn að horfa á fyrstu kappræðu Bush og Kerry. Við vorum nú alveg sammála um að Kerry hafi staðið sig áberandi betur en Bush. Bush karlinn var greinilega ekki stemdur þetta kvöldið, kom oft fyrir að hann datt út úr því sem hann var að tala um, það var eins og hann væri endurtekið að missa þráðinn og þurfti alltaf að líta niður til að minna sig á næsta orð. Eins kom það fyrir að hann hreinlega gaf Kerry síðasta orðið. Það sem setja má út á Kerry er að hann juðaði pínu á fótunum þegar hann átti orðið og talaði of mikið með höndunum. Þetta verður allt svo rosalega áberandi í sjónvarpinu! Hins vegar fékk maður loksins nokkuð góða mynd af ólíkum áherslum þeirra í utanríkismálum með því að sjá þá svona saman. Rebuplikanar hafa reynt mikið að koma höggi á Kerry með því að tuða endalaust um að hann hefði óákveðnar hugmyndir um Íraksmálið allt saman. Svo mikið hefur verið skrifað um hvað Kerry er alltaf að skipta um skoðun á því máli að það var loksins gott að sjá karlinn þarna uppi og útskýra loksins afstöðu sína til málsins því maður var orðinn hálf ruglaður í þessu öllu saman. En alla veganna, mæli með þessum kappræðum fyrir ykkur sem ekki horfðu á þær!
Maður finnur nú aðeins fyrir því hér að það er farið að hausta. Hitinn kominn niður í svona 20 stig og golan orðin svalari. Maður þarf núorðið að fara út á morgnana og á kvöldin í peysu. Haldið þið að það sé! Nei grínlaust þá er greinilega smá munur á árstíðum hér.
Afmælisbarn dagsins í dag er hún Ása vinkona og er stelpan 29 ára í dag. Vona að þú hafir notið dagsins Ása mín. Var úti í allan dag og náði því ekki að hringja í þig, hringi í þig í vikunni.
Læt þetta nægja í bili. Látið endilega í ykkur heyra!
Love,
E

1 Comments:
Þokkalega farið að kólna hér líka og ekki dugir annað en dúnúlpan þessa daganna, svo peysa hvað....!
kv, Soffa
By
Nafnlaus, at 6:32 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home