Humm....man einhver eftir mér?
Jæja, er ekki komin tími til að byrja aftur á þessum blessuðu skrifum? Kallinn var eitthvað að kvarta yfir bloggleysinu hjá mér í gær....greinilega ekki mikið að gera í vinnunni hjá honum.
Annars er fínn tími til að byrja aftur í dag.
Við erum sem sé flutt heim á klakann í nokkra mánuði og komum líklegast til með að flytja aftur af klakanum með haustinu. Það er hins vegar ekki alveg ljóst hvert leiðin mun liggja en eins og staðan er í dag liggur Spánn mjög vel við höggi fjölskyldunnar. Atli ætlar að skella sér í MBA nám þannig að dvölin úti mun vera í rúmt ár. Kannski eitt og hálft. Svo erum við HÆTT. Kaupum okkur lóð, byggjum og lifum þar hamingjusöm til æviloka eins og annað fjölskyldufólk og hættum öllu rugli og róti.
Annars er ég bara í minni vinnu í Háksólanum í Reykjavík þangað til (við rannsóknir) og Atli hjá Össuri. Við vorum svo heppin að fá íbúð þennan tíma sem við erum á landinu. Halldór fékk leikskólapláss í febrúar og er voða glaður og ánægður þar með nýju vinina.
Jæaja, þetta var smá byrjun, meira kemur síðar. Það verður hins vegar gaman að sjá hvort fjöldi þeirra sem kíkja á síðuna hreyfist eitthvað! Allir hættir að fara hér inn, hef ekki skrifað í marga mánuði. Skamm.

4 Comments:
Ég er svo ótrúlega þrautseig að ég kíki alltaf við og við á síðuna þína. Og mikið er ég glöð að þú ert ,,komin'' aftur!
By
Nafnlaus, at 11:15 f.h.
Ér er líka mjög þrautseigur...loksins að ég get farið að lesa eitthvað skemmtilegt í vinnunni! Gott comeback hjá stelpunni...
By
Nafnlaus, at 7:19 f.h.
nei, ertu ennþá þarna?
By
Nafnlaus, at 8:49 f.h.
Hehe, já ég tóri enn. Ég þarf að drífa mig í að skrifa ykkur meira...sé að það er fólk að kíkja af og til á stangli á síðuna!
By
Ella, at 3:47 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home