California here we come...again

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Valur bráðum 3ja mánaða

Valur Björn verður 3ja mánaða eftir viku og fór ég með hann til læknis í dag í eftirlit og bólusetningu. Litla skinnið mitt er orðið 8 kíló (7.950) og 65 cm. Læknarnir höfðu auðvitað aldrei séð jafn stórt 3ja mánaða gamalt barn og skoðuðu hann því á alla kanta og spurðu mig spjörunum úr um meðgönguna og ættarsöguna. Hann fékk líka fyrstu sprauturnar sínar, alls fjórar í lærin, og var hrikalega duglegur. Ég notaði tækifærið og spurði lækninn um skán sem hann hefur verið með á hausnum núna í 2 mánuði sem er að gera mig brjálaða (hart, hrufótt og hálf hvítt sem nær frá hvirfli niður á augabrúnir). Þetta er víst mjög algengt á ungabörnum og tengist einhverri offramleiðslu á fitu sem veldur því að dauða húðin dettur ekki af heldur festist á nýju húðinni (en samt lítur þetta út eins og rosalegur þurrkur). Ég hef sett á þetta olíu 1-2x á dag og greitt þetta úr með lúsakambi en þetta fer aldrei alveg og kemur svo alltaf aftur. Læknirinn benti mér á að fyrst það dugði ekki til að taka þetta ætti ég að nota á hann flösusjampó og reyna að ná þessu þannig. Ef þetta fer ekki með því fær hann sterakrem. Ég hef aldrei heyrt heima að notað sé flösusjampó á þetta...er ekki til spes krem á þetta sem notað er heima...minnir að einhver hafi verið að tala um það. Please látið mig vita ef þið þekkið þetta hvernig þetta hefur verið meðhöndlað heima ef olía hefur ekki virkað. Jæja alla vega, hann var hinn fínast þegar við komum heim og í allan dag en um kvöldmatinn fór hann að slappast eitthvað. Ég gaf honum því stíl en þá tók við 2ja tíma grátkast þar til hann datt útaf. Hann sefur enn og ég sit eiginlega yfir honum hér. Vona að þetta verði bara búið í fyrramálið!

5 Comments:

  • Bæði börnin mín fengu svona skán. Ég var dugleg að bursta skallann á þeim með sérstökum bursta(sérstakur ungbarnabursti). Þetta fer, hafðu engar áhyggjur. kv. Ása

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:31 f.h.  

  • Hæ skvís
    Guðný fékk svona skán þegar hún var lítil og ráðið sem maður fær hér heima er að bera á þetta hvítt vaselín eða vaselinum salicylicum eins og það heitir með réttu. Þú berð þetta á hrúðrið að kvöldi og greiðir svo úr með lúsakambi morguninn eftir, þá er húðin búin að mýkjast og skánin fer af. Gerðu þetta síðan bara aftur eftir nokkra daga ef þetta fer ekki allt og eins ef þetta kemur aftur. Þetta svínvirkaði hjá mér allavega. Þetta er allavega ráðið varðandi hársvörðinn, veit ekki alveg ef þetta nær eitthvað niður í andlitið, en mín fékk þetta í augabrúnirnar líka og ég setti smá þar.
    Kv. Sóley

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:38 f.h.  

  • Ja hugsa sér, barnið bráðum þriggja mánaða! Vona að þú finnir bót á þessari skán - þetta er ansi kvimleitt. Ég hringi í þig um helgina næstu - Hvaða sprautur var Valur að fá? Vonandi gengur þetta fljótt yfir,

    kkv Hildur

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:59 f.h.  

  • Þegar SD og JR voru útlögð af skán, var mér sagt að flest ungabörn fengju þetta.... Svo fór þetta bara. Bar ekkert á skallann eða notaði bursta/lúsakamb. Fór samt alltaf í taugarnar á mér.
    Þú ættir að sjá nýju frænku okkar, Rúnarsdóttur - Valur virkar nú næstum því eins og "smábarn" við hliðna á henni, því hún er svo höfuðstór og svipmikil. Með þykkt, svart hár niður á axlir og dökkar augabrúnir. Ég hef aldrei séð svona barn á ævinni, bjóst þá og þegar við að hún myndi heilsa formlega og spyrja hvernig ég hefði það..... Ekki að spyrja að því hvað þessi börn í fjölskyldunni eru myndarleg!!
    Kossar og knús á þriggja mánaða afmælisdaginn, LDH.

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:43 f.h.  

  • Sæl Ella mín!

    Kíkti á doktor.is, þar eru góð ráð um hvernig á að meðhöndla svonalagað, sló bara inn leitarorðinu "skán".
    Sendi þér svo almennilegan Emil á morgun. Kveðja úr Nýja Lundi.
    Bríet

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home