Helgin
Jæja, helgin liðin. Helgin okkar fór mest öll í matarinnkaup, matarundirbúning og matarboð. Já, Atli var búinn að bjóða nokkrum samnemendum sínum og fjölskyldum þeirra í mat bæði á laugardagskvöldið og sunnudagskvöldið (og reyndar annað kvöld en við frestuðum því aðeins sökum anna hjá Atla). Þetta tókst allt bara mjög vel og var voða gaman. Fyrra kvöldið komu til okkar hjón með barn sitt en konan er frá Tælandi og hann er ættaður frá Víetnam en er franskur. Seinna kvöldið komu til okkar argentínsk hjón. Hjónin sem eru væntanlega til okkar eru svo frá Bosníu. Þetta er því mjög alþjóðlegt hér hjá okkur og mjög gaman að hitta svona fólk frá öllum heimshornum. Það var því lítið farið á flakk um Kaliforníu þessa helgina og verður líklega ekki mikið farið næstu 2 helgar þar sem Atli er á fullu í að undirbúa sig fyrir atvinnuviðtöl. Nemendurnir fá að vinna yfir sumartímann og eru allir auðvitað að slást um stöður hjá bestu fyrirtækjunum. Það fer því mikið púður hjá þeim í umsóknirnar og svo undirbúning fyrir viðtöl ef menn komast í þau.
Við erum aðeins farin að spá í hvað við ætlum að gera í spring break sem er um miðjan mars. Erum mikið að spá í að skella okkur til Hawai. Það er víst mjög vinsælt að kíkja þangað með familíuna í frí meðal stúdenta hér eða á einhvern stað sem ég man ekki hvað heitir í Mexikó. Ætlum að byrja að skoða þetta fljótlega.
Jæja, Valur Björn kallar. Læt heyra í mér síðar.

1 Comments:
Er það ekki Puerto Vallarta í Mexícó?
By
Betu, at 3:27 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home