California here we come...again

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

Ferðalög, kuldi, haglaskot og drasl

Atli fór til NYC í gærkvöldi í fleiri viðtöl og er ekki væntanlegur til baka fyrr en seint annað kvöld. Enn eru nokkur viðtöl eftir hjá honum, annað viðtal í NYC í næstu viku og eitt í LA sem ég veit um. Það fer þó að styttast í að við vitum hvar hann mun vera niðurkominn í sumar. Þessi job sem hann er helst að sækjast eftir eru í Houston Texas, LA California, Sviss og London. Ef hann fær eitthvað af þessu þá eru þetta staðirnir. Nú ef hann fær ekkert af þessu þá byrjar ferlið bara aftur upp á ný, sækja um á öðrum stöðum, fleiri viðtöl o.s.frv. God, má ekki til þess hugsa!

Ég vaknaði í morgun við troðslu í rúminu þótt Atli væri ekki á svæðinu. Halldór var kominn uppí og ég hafði sofnað með Val á brjóstinu. Öllum var svo kalt að við lágum í einni hrúgu nánast ofaná hvort öðru. Skrítið hvað veðrið sveiflast. Í síðustu viku var 25 stiga hiti og sólbaðsveður og svo þetta! Það er bara hreinlega KALT í dag.

Það helsta í fréttum hér í USA er frekar skopleg frétt sem þið hafið eflaust frétt af. Varaforseti USA Dick Cheney var á kornhænuveiðum með haglabyssuna sína í Texas með einhverjum rebúblikana milla-vini sínum þegar hann heyrir þrusk fyrir aftan sig, snýr sér við og skýtur. Í ljós kom að þetta var ekki kornhæna sem hann hæfði heldur milla-vinurinn frá Texas. Hann skaut aumingja manninn í andlitið. Höglin lentu einnig í bringunni á karlinum (félaginn er að nálgast 70 árin) en talið var að hann væri ekki í lífshættu fyrr en hann fékk vægt hjartaáfall eftir "óhappið". Kom þá í ljós að eitt haglið hafði lent í hjartanu á honum. Finnst ykkur þetta ekki einhvern veginn týpískt að gerist fyrir Bush og hans félaga?

Jæja, ætla að taka til í draslinu hérna hjá mér áður en við höldum út. Íbúðin er svo lítil að þá má ekki reka við hér, þá er allt orðið í drasli! Skil ekki hvernig þetta getur orðið svona þótt maður taki til 10x á dag. Seinna í dag er mér boðið í blanket babies klúbb (einn mömmukúbburinn hér) en eins og þið sjáið er brjálað að gera í social-lífinu hér. Haha, mömmuklúbbur hér, mömmuklúbbur þar. Svo ætla ég að pína Atla til að læra sem minnst yfir helgina (en þetta er 3ja daga helgi) og gera eitthvað skemmtilegt með okkur í staðinn.

Seinna,
E

9 Comments:

  • fyndið - ég skrifaði þér kommentent en það hefur greinilega ekki skilað sér. Ja, hérna það er aldeilis mikið í gangi hjá ykkur. Það hlýtur nú eitthvað að koma út úr þessum viðtölum hjá Atla. Verður spennandi að sjá hvar þið lendið. Ef þið farið til Evrópu þá skreppur maður nú í helgarferð! Hér er hefur verið skítakuldi og rok í þokkabót. Vondandi verður aðeins betra veður í Glasgow. Maður er orðinn hálfleiður á þessum vetri hérna. Ég vissi ekki að það væru svona miklar sveiflur í veðrinu í Cal - hélt að þar væri bara eilíf sæla! Mikið eru myndirnar af þessum elskum sætar - þær eru komanr upp á vegg. Er Halldór búinn að fá pakkann frá mér?
    Hringi á morgun,

    kv Hildur

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:38 f.h.  

  • Sæl öll.
    Mér finnst þetta nokkuð týpiskt fyrir Atla að vera í viðtölum út um allt landið - og með það í huga að vinna á hinum ólíklegustu og líklegustu stöðum á jarðkringlunni! Þegar ég las síðustu skrif þín fór ég að verða hræddur um að hann væri að klára í sér líftóruna. Þú sagðir að hann héngi varla uppi. Man eftir svona líðan fyrir mörgum árum. Við vorum að hugsa um að koma í heimsókn og liggja upp á ykkur. Sé að það er vonlaust þar sem húsið er svona pínulítið. Verð þá að sleppa þessu. Kannski mamma þín komi bara ein ef pláss er fyrir hana á klósetinu !
    Pabbi.

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:49 e.h.  

  • Nei, blessaður! Það er allt á fullu hjá Atla eins og alltaf. Ykkur er auðvitað velkomið að vera hér. Það eru 2 svefnherbergi í húsinu þannig að ef þið mætið með dýnuna er hægt að græja þessu. Það verður kannski svolítið þröngt en við lifum það af.

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:00 e.h.  

  • Sæll Halldór,

    Það vantar ekki blammeringarnar! Þið eruð auðvitað velkomin hingað...við búum knappt og spart eins og fátækum námsmönnum sæmir en það er alltaf pláss fyrir góða. Hvað atvinnuleitina varðar, þá á ég ennþá 3 viðtöl eftir...vona að ég geti nælt mér í eitthvað gott fyrir sumarið. Svo sjáum við til hvað verða vill eftir útskrift. Almennt séð hafa útlendingarnir átt erfitt með að ná sér í vinnu hér í US en ég tek ekkert mark á því...vonandi get ég sagt ykkur góðar fréttir innan 2ja vikna.

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:21 e.h.  

  • Blessaður Billi,
    Ertu sem sagt ekkert á heimleið eftir þessa 3 mánuði?

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:01 e.h.  

  • hæ aftur, talaði við Atla varðandi plögg sem ég fékk send frá LÍN, þetta er v. Financial Aid og Educational cost, þið finnið eyðublöðin á heimsasíðu Lín, það þarf að senda þau til þeirra undirskrifuð af skólanum. Gaman að heyra að Steinunn og Halldór ætla að heimsækja ykkur um páskana. Við ætlum að fara til Pétursborgar í byrjun maí, ég hlakka til að fara í þá ferð, búið að vera draumurinn lengi að heimsækja þessa borg.

    kkv Hildur

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:24 f.h.  

  • Sæll Atli kaldi.
    Þetta eru engar blammerninga. Það er ekki nema von að svona ofvirkir menn tali svona þegar þeir heyra sannleikann.Þegar venjulegur maður er að niðurlotum kominn vegna álags þá nýtur þú þín aldrei betur. Líklega vidirður vinna hálfan mánuð í Afríku, hálfa í Arabíu og s.frv. þannig að þú spannaðir allann heiminn yfir sumari !!
    Grínlaust þá er áreiðanlega fínt hjá þér að fá tilboð frá BCG, - ef þeir eru ennþá jafn virtir og þeir voru hér áður. Getur áreiðanlega haft gott af því.

    Varðandi svona heimboð Ella þá get ég sagt þér það, að ég kem ekki þurfi ég að ferðast með dýnu með mér á milli heimsálfa. Kanntu annan betri? Mamma þí segir vera tilbúinn að sofa í baðkarinu, ég er tilbúinn að sofa í ykkar rúmi og þið komist þá vonandi fyrir í litla herberginu með skápana ? Svona vil ég hafa það sé ég boðinn !

    Ef Billi er að lesa þetta hjá þér, þá má hann hafa samband heim. Hann lætur engann ná í sig síðan Sigrún sagði honum, eftir að hann sagðist vera orðinn útlærður kokkur og nuddari, að þá væri hann væntanlega tilbúinn!! Hann hefði líkega engar frekari afsakanir.Hvað hún átti við veit ég ekki en hann virðist hafa skelfst svona að það næst ekki í hann.
    Pabbi

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:42 e.h.  

  • Hæ pabbi. Gaman að heyra í þér, gátum hlegið af þessu hjá þér :) Já þetta var flott hjá Atla. Hann má vera ánægður með sig (og ég yfir því að vera ekki á leið til Texas í sumar!!!) Héldum upp á þetta í kvöld og fórum á flottasta pizzastaðinn hér í Palo Alto, toppurinn á tilverunni hjá peningasnauðum námsmönnum. BCG eru flottir og mjög virtir hér eins og um heim allan, aðal keppinautur McKinsey.

    Dýnan var auðvitað ætluð okkur..hehe. Hvarflaði aldrei annað að mér en að láta ykkur fá okkar rúm (enda er ábyggilega betra að sofa á þessari eðal dýnu en þar)! Fer annars lítið fyrir skápaplássi hér og baðið er það minnsta og grynnsta sem við höfum séð. Það er því útséð að dýnan verður að fylgja með. Sorrý.

    Góður þessi með Billa. Hann er án efa búinn að leggja drög af því að eyða ævikvöldinu í Tælandi, samanhnýttur í einhverri exótískri jógastellingu.....earth to Billi...earth to Billi...please respond.

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:00 e.h.  

  • Atli minn til hamingju með jobbið, við Guðjón kíktum á heimasíðu BCG í gærkvöldi og finnst fyrirtækið virka mjög traustvekjandi, ekki síst fyrir starfsmannastefnu þeirra. Og Ella mín ég samgleðst þér að vera ekki á leiðinni til Texas! Auðvitað eigið þið að vera við hafið! Alveg frábært!

    kkv Hildur

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:36 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home