California here we come...again

fimmtudagur, mars 23, 2006

Ég fer í fríið

Jæja, hér er ég komin aftur. Hef ekki nennt að blogga um ekki neitt því undanfarið hefur Atli auðvitað verið í prófum og ég verið með börnin og heimilið á herðunum allan sólahringinn.
Ég tek ofan fyrir einstæðum mæðrum.
Alla vega, þetta er búið í bili og nú er það bara frí, frí og frí. Spókuðum okkur aðeins um í San Fran í dag meðan HAA var í skólanum. Á morgun höldum við svo í ferðalag. Förum til OC í tvo daga að heilsa uppá gamla kunningja (Orange County). Þaðan er ferðinni svo heitið til Palm Springs en þar höfum við leigt okkur glæsivillu með einkasundlaug, þjónum, kokkum, nuddurum og tilheyrandi. Þarna náði ég ykkur, smá djók. Þetta er kannski ekki alveg svona fínt en við fundum þetta fína hús á leigu sem er reyndar með einkasundlaug og heitapotti og svo er spáin ekki slæm, 25-28 stiga hiti alla næstu viku. Þar ætlu við að vera í 4-5 nætur. Ætli við komum ekki aftur heim næstu helgi, á laugardaginn eða sunnudaginn.
Later,
E og co.

3 Comments:

  • Gott hja ykkur!! thad er nu aldrei leidinlegt ad hafa sina eigin sundlaug.. Goda ferd i friid..

    kv Billi

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:22 f.h.  

  • Planið hljómar vel! Hafið það sem allra best í langþráðu fríi frá skóla og húsmæðrastörfum. Hlökkum til að heyra ferðasöguna!

    Knús,
    Soffa & co.

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:39 e.h.  

  • Þú náðir mér sko alveg! Ég trúi alveg á þetta sældar líf í Calí!
    E

    By Blogger Erla, at 12:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home