Tíðindalaust
Síðan við komum heim úr hinni margrómuðu LA ferð hefur veðrið hér verið ömurlegt. Rigning og rok uppá hvern dag. Það er eiginlega frekar morkið að vera hér í svona veðri, verð að viðurkenna það. Held að litla íbúðin hafi mikið með það að gera. Að vera hálf fastur inn í svona litlu rými þar sem allt verður í drasli út af engu. Ég er sem sagt búin að vera að taka til í viku núna (Atli tekur hins vegar aldrei eftir því þegar hann kemur heim hahaha....það verður allt í drasli samstundis aftur!).
Valur Björn stækkar og stækkar. Hann er nú orðinn rúmlega 4ra mánaða og er líklega að nálgast 10 kílóin (ef hann hefur ekki þegar náð þeim áfanga, svei mér þá). Ég fer með hann í skoðun í byrjun apríl (þá rúmlega 5 mánaða) þannig að ég bíð bara spennt að sjá næstu risatölur. Hann er alla vega farinn að taka vel í þegar ég held á honum. Annars er alltaf voðalegt fjör hjá honum og finnst honum Halldór Andri alveg einstaklega fyndinn. Hann er farinn að blaðra mikið, farinn að grípa um hluti og beina þeim upp í sig, rúllar sér af maga yfir á bak og farinn að æfa sig í að flytja dót milli handa. Allt er komið í reglu hjá honum, svefninn og matarvenjur. Hann er bara algjört krútt.
Halldór Andri er alltaf jafn ánægður í skólanum sínum. Hann er orðinn voða fær í enskunni, heyrði hann um daginn tala upp úr svefni á ensku og gómaði hann í baði þar sem hann var að leika sér með karlana sína í bardaga á ensku. Svona gerist þetta hratt. Hann notar hvert tækifæri til að æfa enskuna sínar og svoleiðis króar fólk af til að blaðra við það. Hann þekkir alla hér í garðinum (sem er nú meira en ég geri!). Það eru nokkrar konur hér sem hafa komið til mín og sagt mér nokkrar góðar sögur af Halldóri. Ein þeirra elskar Halldór út af lífinu. Hún er svona skvetta frá Suður-Ameríku (Halldór fílar þær yfirleitt nú vel...skvetturnar sem tala við hann út í eitt á móti) sem er endalaust hrifin þegar Halldór gerir sér ferð á pallinn hjá henni á hjólinu sínu til að heilsa og segja frá því sem gerst hefur hjá honum þann daginn. Þrátt fyrir að allt gangi vel talar hann nú stundum um að hann sakni einhvers heima. Hann hugsar oft um leikskólann sinn, Kópastein, og vinina sína þar, Önnu Maríu og auðvitað Jónas frænda og oft kemur fyrir að hann óski sér að hafa ömmurnar sínar hjá sér.
Jæja er þessi kanadíska komin til að drífa mig út í göngutúr.
Heyrumst!

4 Comments:
ja hérna hér. Mér sinnst nú að Atli Knútsson þurfi að fara að taka sig á! Já, Ella mín það er erfitt að ala þessa menn upp. Þú losnar ekki út úr þessu fyrr en þú ferð út fyrir heimilið! Hugsa sér hvað Valur minn er orðinn myndarlegur, ótrúlegt hvað þau stækka hratt. Hallór er náttúrulega miðpunkturinn þarna ég sé hann alveg fyrir mér, búin að ná sér í vinkonur út um allt.Hann er svo mikill sjarmör þetta barn.
meir seinna Hildur amma
By
Nafnlaus, at 7:43 f.h.
Skipti við þig any time sis. Hér er slabbið og grámyglan allsráðandi í veðráttunni.
Litla Rannsý er bara yndisleg, leikur, borðar og sefur allan daginn. JFJ tekur hlutverk sitt sem hundapabba mjög alvarlega og sér um hana þegar hann er heima. JR biður að heilsa, LDH og co
By
Nafnlaus, at 8:54 f.h.
Hæ Billi...Já, bið Atla um að láta vin sinn hafa meilið þitt. Lilja gaf Jónasi stóra labrador hvolp sem skírður hefur verið Rannsý. Jónas er hinn ánægðasti með að fá loksins "alvöru" hund á heimilið en nú eru þau með 3 sheltee hunda (einn í láni í ár frá Svíþjóð til undaneldis (Felix)) og svo nýja labbann.
By
Nafnlaus, at 9:54 f.h.
Ella mín. Gaman að heyra að þú ætlar í fjarnám, vonandi gengur þetta, bíð spennt eftir frekari fréttum.
kkv Amma Hildur
By
Nafnlaus, at 5:51 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home