Hann á afmæli ...
... í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann Atli,
hann á afmæli í dag.
Jebb, kellinn er 31 í dag. Hann vaknaði fyrir allar aldir í morgun til að fara niðrí skóla að læra en lofaði að koma heim í smá tíma um kvöldmatartímann. Lokaprófin fyrir þessa önn eru í næstu viku þannig að það er auðvitað allt vitlaust í skólanum. Ég skellti mér því í Nordstrom í dag og keypti á kellinn Lacoste polo bol. (Ég keypti mér svona bol um daginn og veit hann langar mikið í hann...hann er mikið búinn að öfunda mig af þessum bol mínum). Hann fær því mjúkan pakka þegar hann kemur heim og ætli ég reyni ekki að elda eitthvað handa honum líka.
E

6 Comments:
Takk fyrir mig ástin mín...mjög sáttur með tutluna. Allir helstu svalarnir hérna ganga í Lacoste tutlum og ég get ekki verið minni maður. Annars frekar tíðindalítill afmælisdagur...gleymdi því meiraðsegja í morgun að ég ætti afmæli! Hún Ella mín kom mér svo skemmtilega á óvart með smá gjöf og góðum mat :-) Fyrir ykkur sem ekki sáuð ykkur fært að hringja í dag eða senda gjafir: Ég sit við símann á morgun (hehe)!
Kv.
A
By
Nafnlaus, at 10:08 e.h.
Vil aðeins koma því að framfæri að ég, móðir afmælisbarsins, gleymdi náttúrulega ekki mínum dreng og hringdi á afmælisdaginn.
By
Nafnlaus, at 1:40 f.h.
Til hamingju með afmælið Atli og gangi þér vel í prófunum.
Lilja og co
By
Nafnlaus, at 12:48 e.h.
Innilega til hamingju með afmælið Atli(og Lacoste bolinn...:-)!!
Bestu kveðjur,
Soffa, Jói og Dísa skvísa
By
Nafnlaus, at 4:03 f.h.
sæll billi,
þegar mig hefur vantað boli hef ég nú yfirleitt fengið þína "lánaða"...
By
Nafnlaus, at 7:53 e.h.
Hæ hæ, hver er adressan þarna hjá ykkur í útlandinu, er að senda út smá póst.....
By
Nafnlaus, at 4:27 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home