Fyrsta tönnin
Já, varð bara að deila þessu með ykkur. Fyrsta tönnin hjá Val er fundin og sú við hliðina mun líta dagsins ljós á næstu dögum. Mamman fann hana áðan með skeið en það glamraði hátt í tönnslunni þegar slegið var á hana með skeiðinni. Valur verður 5 mánaða á morgun og ég held að Halldór hafi verið á svipuðum aldri þegar fyrsta tönnslan kom hjá honum. Bækurnar um hann eru í búslóðinni í kassa þannig að ég reyni að bera þá saman eftir minni og finnst þetta allt eitthvað svo svipað hjá þeim.
Annars er Valur orðinn stór og stæðileg, sæt rúsína. Hann er einstaklega brosmildur (...eru börnin manns ekki alltaf einstaklega eitthvað!) og er nánast alltaf í góðu skapi. Uppáhaldið hans er samt Halldór Andri. Hann getur hlegið endalaust þegar Halldór nennir að leika við hann (sem hann er mjög duglegur að gera). Ef það er hins vegar eitthvað að bögga hann og hann fer ekki að hlægja að því sem hann er vanur að hlægja að er bara málið að gefa honum eitt laust klíp utanum lærið og þá er það komið....hann er nefnilega verulega kitlinn eins og stóribróðir sinn. Annars held ég að hann sé pínu mannafæla. Frá 2,5 mánaða aldri hefur hann orðið vitlaus við einstaka fólk ef það svo mikið sem horfir á hann. Þetta eru bæði karlar og konur og ákveðnir einstaklingar. Mamma sagði mér að Lilja systir hafi verið svona frá því hún var í vöggu og það sem meira er, þetta var sama fólkið og hundunum var illa við!
Set myndir af afmælisbarninu og okkur hinum á síðuna þegar ég kem aftur heim til Stanford, ég gleymdi myndavélasnúrunni heima til að hlaða myndunum af vélinni.

4 Comments:
frabaert ad heyra af tonninni... hann getur tha bradum farid ad bita i puttana a theim sem reynir ad kitla hann...og hananu!!
kv billi
By
Nafnlaus, at 8:31 e.h.
Til hamingju með fyrstu tönnina litli frændi. Það er ekki verra að vera mannafæla, mikilvægur eiginleiki að kunna að velja sér vini.
Hvað á að gera í páskafríinu? Við erum ekki búin að ákveða, japl jaml og fuður og líklega liggjum við bara í sófanum og horfum á sjónvarpið eins og venjulega. Væri þó til í að fara á skíði, ef færi gefst.
Knús til frænda minna, Lilja frænka.
By
Nafnlaus, at 6:10 f.h.
Ég hlakka til að sjá myndir. Hafið það gott! asa
By
Nafnlaus, at 12:59 e.h.
Til hamingju með tönnina Valur Björn. Þú ert tímanlega í því eins og öðru. Hlakka til að sjá ykkir hvenær sem það nú verður. Bless mamma (amma)
By
Nafnlaus, at 5:04 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home