Smá update
Veðrið lætur ekki á sér standa þessa dagana. Það er sól og 25 stiga hiti hér dag eftir dag. Ef til vill á þetta bara að vera svona á þessum tíma! Þetta er bara svo ólíkt því sem maður var orðinn vanur, endalausum rigningadögum og eiginlega skítaveðri. En alla vega. Fjölskyldan eyðir nú meiri tíma úti en inni í litla húsinu. Við erum úti í garði að leika, skellum okkur í hjólatúra eða röltum um hér í nágrenninu og fáum okkur ís. Lítið er hins vegar um að við komumst í sund. Stundum er okkur hins vegar boðið í einkasundlaugar hér á svæðinu og verða sumir ákaflega glaðir þegar það gerist.
Halldór Andri stóð sig rosalega vel í Latabæjar-orkuátakinu sem hann tók þátt í. Náði um 4500 stigum en samningurinn okkar við hann hljóðaði uppá að ef hann næði 4000 stigum fengi hann Playstation tölvu. Leikurinn gengur útá að borða hollt, mikið vatn, grænmeti, ávexti, fara snemma að sofa, taka til í herberginu hjá sér og allt þetta og fyrir það fá þau stig. Þau fá hins vegar - stig fyrir að borða kökur, nammi, ís og þess háttar. Hann bara massaði þetta krakkinn. Ég frétti það út um allan garð að þegar var verið að gefa krökkunum eitthvað hér spurði hann hvort það væri sykur í þessu og ef svo var tók hann ekki í mál að fá sér. Í eitt skipti borðaði hann hjá Dante vini sínum og þau fengu sér ís í eftirrétt. Mamma hans reyndi með öllu á fá Halldór til að fá sér ís með þeim en allt kom fyrir ekki. Hann tók þetta svona rosalega alvarlega og ætlaði sér að fá playstation...sem hann fékk á endanum. Hann fær svo að spila í henni í smá stund á dag, þegar hann er búinn að lesa smá.
Valur er orðinn 6 1/2 mánaða núna. Time flies. Hann er alltaf sama rólyndis blóðið en lætur samt vel í sér heyra ef þannig liggur á honum. Honum finnst orðið leiðinlegt að hanga inni en steinhættir að gala og góla þegar við förum út í garð eða í göngutúr. Úti nær maður svo engu sambandi við hann því það er svo mikið að skoða og horfa á að hann er ekki að eyða tímanum í það sem hann sér allan daginn. Tennurnar hans 2 eru alveg komnar upp og ég held að fleiri tennur fari að koma fljótlega. Hann er farinn að borða krukkumat, banana og oatmeal 2x á dag, í hádeginu og á kvöldin. Honum finnst allt gott, sama hvort það séu krukkumatsbaunir (frekar ógirnilegt) eða sveskjumauk. Hann vill bara alltaf meira og meira alveg eins og Halldór var. Hann er alveg farinn að sitja sjálfur ef maður passar hliðarnar og fyrir aftan hann. Hann er einnig farinn að hreyfa sig mjög mikið. Þegar ég set hann á leikmottuna sína á gólfinu getur hann verið kominn þvert yfir gólfið skömmu síðar með snúningum og einhverju buðli. Hann er farinn að reyna að sprikkla sér áfram með löppunum og setja þær örlítið undir sig. Alveg með á hreinu að hann fari fljótlega að skríða.
Mamma og pabbi eru komin og farin. Við höfðum það mjög gott með þeim. Slöppuðum bara af, fórum í göngur um svæðið, skelltum okkur í búðir og elduðum fínan mat flesta daga. Þau fengu líka þetta fína veður, komu eiginlega með það með sér. Það er ekki nema um mánuður eftir af skólanum hjá Atla. Þá er hann kominn í smá frí áður en vinnutörnin byrjar í sumar. Ætli við eyðum ekki bara frítímanum hér í rólegheitunum. Vorum að kaupa okkur þessa fínu sólstóla og þá verður að nota! Annars er bara allt við það sama hjá okkur. Fórum í matarboð sl. föstudagskvöld og erum að bjóða í eitt sjálf í kvöld. Ætlum að grilla lambakjöt. Ég ætla svo að skella mér í stelpupartý (sundlaugapartý) hjá Esperönsu nk. fimmtudag. Þar hefur hún boðið hópi vel valinna kvenna, bæði stelpur í MBA náminu og svo konur maka. Það verður vonandi stuð. Já og svo er Eurovision næsta fimmtudag líka. Ætli ég siti ekki fyrir framan tölvuna um morguninn og fylgist með þessu í beinni á netinu.
Jæja, þetta er nóg af röfli á einum degi. Endilega sendið mér nú póst eða hringið. Mér finnst orðið mjög langt síðan ég heyrði í einhverjum af vinum mínum!

3 Comments:
Elskurnar mínar. Mikið eru þetta sætar myndir og Halldór mín duglegur í átakinu. Neitaði ísnum! Ja öðruvísi mér áður brá!En það var líka til mikils að vinna. Hlakka svo til að sjá ykkur, hugsa sér hvað tíminn bókstafelga flýgur - allt fínt héðan,
knús Hildur amma
By
Nafnlaus, at 7:24 f.h.
Hæ skvís!
Hljómar ekki illa að vera í San Fran þessa dagana í svona frábæru veðri!
Er að fara til BWI á eftir, bjalla á þig þegar ég kem þangað í kvöld!
Soffa
By
Nafnlaus, at 2:59 f.h.
Hæ hæ :)Latibær virkar svo hvetjandi á börnin og Halldór svona móttækilegur, duglegur strákur:)Annars er allt ágætt að frétta fyrir utan að endajaxlinn fór að plaga mig, bólgna og láta öllum illum látum. Þurfti ég að láta fjarlægja kvikindið og er því bólgin og illa haldin þessa dagana...það var þá tímasetningin.
Ég verð þá bara eins og uppblásin blaðra á stóra deginum hihihihi ;)
luv,
Elísabet
By
Nafnlaus, at 6:45 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home