California here we come...again

mánudagur, maí 08, 2006

Myndir

Cinco de Mayo (5. maí er þjóðhátíðardagur Mexico). Garðbúum var boðið í borito og svo slógu krakkarnir köttinn úr sekknum eða í svokallaða pinada (borið fram sem pinjaða).


Valur Björn er nú orðinn 6 mánaða og er alltaf sama ljúflings lambið. Hann er kominn með 2 tennur og farið er að bera á nokkrum hárbroddum hjá honum. Hann veltir sér í allar áttir og er nánast farinn að sitja sjálfur. Hann er farinn að borða smá fasta fæðu en fær minna en hann vill. Hann ætlar sem sagt að verða mathákur eins og stóri bróðir. Hann er alltaf í stuði og alltaf mjög stutt í brosið hjá þessari litlu rúsínu.






Það er alltaf stuð að vera þar sem Halldór er







Halldór og besti vinurinn hann Dante á fótboltaæfingu




Grillveislan með latino genginu (fólk frá Mexico og Argentínu)



Í garðinum okkar. Hægramegin við Atla sjáið þið opið hlið og það er húsið eða íbúðin okkar!


Þetta gerum við Halldór nokkrum sinnum í mánuði. Dress up og svo er hann málaður. Nú er hann hins vegar farinn að koma með alla vinina úr garðinum og ég verð að gjöra svo vel að mála allan skarann.



Feðgarnir að horfa á Spiderman í draslinu



Lítil rófa












3 Comments:

  • En gaman að sjá myndir! Sé ekki annað en að veðrið sé svipað hjá okkur :) Læt heyra í mér fljótlega, asa

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:58 e.h.  

  • Jibbííí...
    Komnar nýjar myndir :)
    Sætir kútar. Það virðist vera sama veðurblíðan hjá ykkur og hjá okkur á litla Íslandi. 'Islendingar ungir sem aldnir eru að springa úr gleði þessa dagana þar sem hitabylgja hefur heiðrað okkur með nærveru sinni. Allir tala um veðrið ;)Það er ekki annað hægt en að gleðjast með landanum....
    Knús
    Elísabet

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:25 f.h.  

  • Já, er sko búin að frétta af veðrinu heima. Það hefur verið rosalega heitt hér hjá okkur síðustu daga, einum of eiginlega. Það er æðislegt á Íslandi þegar veðrið er gott þannig að vonandi eru allir bara að nóta þess! Vonandi verður veðrið svo svona þegar stóra stundin rennur upp hjá þér Elísabet....það væri nú ekki til að spilla neinu.

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:58 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home