California here we come...again

þriðjudagur, maí 30, 2006

Helgin í LA

LA ferðin var hrikalega fín. Vorum á flottu hóteli í Santa Monica og héldum okkur þar nánast allan tímann. Lágum við sundlaugina í sólbaði og átum á okkur gat af fínum hótelmat í boði BCG og hofðum svo á bíómyndir á kvöldin. Fórum einu sinni á promenade í Santa Monica og kíktum í búðir og í einn bíltúr að skoða íbúðina okkar í sumar. Við erum sem sagt úthvíld og kaffibrún eftir ævintýri helgarinnar. Nema aumingja Valur. Hann er bara hvítur með rauðar doppur en húðvírusinn er samt að lagast...loksins. Í öllu afslappelsinu gleymdist að taka myndir þannig að þið fáið ekkert að sjá sundlaugarlíf okkar í þetta skipti.

Atli á núna eftir rúma viku í skólanum en við fáum þarna 10 daga frí saman áður en hann fer að vinna í LA og ég heim. Úff þetta er bara allt að bresta á. Tíminn hér er búinn að líða hreint ótrúlega hratt, trúi því ekki að það er HÁLFT ÁR síðan ég kom hingað út!

1 Comments:

  • Þið hafið greinilega náð að slappa af og safna kröftum því nóg er hjá ykkur að gera framundan. Atli til LA og þú og drengirnir á heimleið.
    Gott að heyra að Valur sé að lagast og vonandi verður hann búinn að jafna sig fyrir heimleiðina. Halldór væntanlega orðinn kaffibrúnn og ljóshærður eins og þú varst á þínum yngri árum....
    Annars er allt gott að frétta af okkur. Ætlum í bústað fljótlega og svo til Spánar í lok júní.
    Hlakka til að fá ykkur heim :)
    Knús og kremj...
    E

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:32 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home