Brullup
í þessum skrifuðu orðum er Elísabet æskuvinkona mín búin að gifta sig og veislan líklega í hámarki. Það er algjör hörmung að sitja hér föst yfir börnum og búi og komast ekki í þessi brúðkaup sem okkur hefur verið boðið í (sem eru orðin tvö þetta árið) og hvað þá hjá manneskju sem hefur verið ein besta vinkona mín í 25 ár. Já mér finnst það leiðinlegt. Soffa var svo rausnarleg samt að bjóðast til að lesa ræðu frá mér ef ég vildi og það var ég ekki lengi að grípa. Ég hef því setið hér dreymandi á svip síðustu daga og rifjað upp þessi ár okkar sem við höfum þekkst og spáið í það....þau eru að verað 25. Við erum að verða hundgamlar.
Alla vega, til hamingju enn og aftur elsku Elísabet og Eiríkur. Hlakka til að koma á myndakvöld til ykkar þegar ég kem heim. Ég ætla hins vegar að reyna að hringja núna og óska ykkur til hamingju í eigin persónu!
Alla vega, til hamingju enn og aftur elsku Elísabet og Eiríkur. Hlakka til að koma á myndakvöld til ykkar þegar ég kem heim. Ég ætla hins vegar að reyna að hringja núna og óska ykkur til hamingju í eigin persónu!

2 Comments:
Elsku besta vinkona.
Takk fyrir yndislega falleg og skemmtileg orð í minn garð sem Soffa las upp svo eftirminnilega. Það voru þó nokkuð mörg tár sem féllu og minningarnar streymdu að.
Þessi fallega ræða er mér mjög mikils virði og þætti mér vænt um ef þú gætir sent mér eintak af henni. Það var virkilega gaman að heyra í þér þarna um kvöldið þótt sambandið hafi verið hálf lélegt. Þessi dagur var ævintýri líkastur og erum við búin að vera í hálfgerðu móki síðan. Ég hlakka til að fá ykkur heim og sýna þér myndirnar.Hafið það sem allra best þangað til næst.
Knúúúússss....
By
Nafnlaus, at 3:39 e.h.
Búin að senda þér ræðuna á hotmailaddressuna þína. Sjáumst svo í sumar.
By
Nafnlaus, at 5:51 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home