California here we come...again

mánudagur, ágúst 14, 2006

Dekur, dekur, dekur

Þessi helgi var sú síðasta sem við familían áttum saman hér í LA því næstu helgi verður lagt í langkeyrslu og keyrt í 8 tíma til San Fran (Palo Alto). Við ákváðum að dekra svolítið við okkur og skelltum okkur á æðislegt hótel við ströndina í Dana Point (þar sem við bjuggum í OC) í eina nótt. Þetta er æðislegt hótel, lítið krúttlegt og kósí. Við vöknuðum snemma á laugardaginn og drifum okkur af stað en aksturinn til Dana Point er rúmur klukkutími héðan. Við stoppuðum á leininni downtown í vinnunni hjá Atla því ég átti alltaf eftir að sjá vinnustaðinn umtalaða. Ég get sem sagt staðfest það sem ég hef heyrt frá samstarfsfélögum Atla og Atla sjálfum, staðurinn er hreint út sagt geggjaður. Þetta er flottasti vinnustaður sem ég hef komið inná get ég sagt ykkur. Hann var hreint út sagt hrikalega flottur (var ekki með myndavélina en þið getið ímyndað ykkur að vera stödd á 32 hæð með útsýni í allar áttir og öll hönnun í svona contemporary design stíl....allt hriklega flott).

Við mættum snemma á hótelið til að geta notið dagsins við sundlaugina. Allir voru að fíla sig í botn. Halldór sprikklaði þarna um eins og selur fram á kvöld og Valur var ekki síður ánægður með lífið. Hann eignaðist armenska aðdáendur (fólk í fríi á sextugsaldri) sem sáu hreint ekki sólina fyrir honum. Þau létu okkur fá símann sinn og heimilisfangið og vildu fá okkur í heimsókn sem fyrst og í sundlaugina til sín. Kallinn ætlaði að vera búinn að kaupa heila leikfangabúð handa Val þegar ég kæmi með hann. Þegar við komum heim tékkuðum við á hvar þessi addressa er og komumst að því að liðið býr í höll hér rétt hjá okkur í hverfi sem heitir Bel Air....gaman að þessu. Þegar kvölda tók skelltum við okkur á einn Tælenskan á svæðinu. Pakksödd renndum við svo aftur uppá hótel og horfðum á Mission Impossible III uppí rúmi með hinum einum sanna Tom Cruise og rendum kók og M&M niður með myndinni. Sunnudagurinn byrjaði með morgunmatshlaðborði á hótelinu og auðvitað var borðað úti í góða veðrinu. Atli var búinn að plana ferð til Laguna Beach með vinnugenginu sínu og hittum við þau öll á ströndinni sem var skammt frá hótelinu okkar. Áttum við með þeim frábærtan dag á ströndinni en áður en haldið var aftur upp til LA borðaði hópurinn á hinum fræga Johnny Rocket hamborgarastað. Sem sagt, afslöppuð helgi í OC þar sem sólin var sleikt og mikið étið af óhollum KALORÍUM.

Áður en ég hætti þessu verð ég að gefa ykkur smá update af VB. Hann stækkar og stækkar og er á frábærum aldri nákvæmlega núna en hann er nú orðinn 9,5 mánaða (veit...ótrúlegt hvað tíminn flýgur). Hann er auðvitað farinn að skríða á 40 km hraða, stendur upp og labbar með hvar sem hann getur og er alltaf á hausnum (er í þessum skrifuðu með nokkra marbletti á andlitinu). Fyrsta orðið hans var voff (off) og segir hann það í gríð og erg þegar maður spyr hann Hvað segir voffi? (það býr hundur á neðrihæðinni sem geltir út í eitt og svo bjó hann auðvitað með 5 hundum í sumar á Hegranesinu). Í fyrradag fór hann svo líka að segja óó. Hann er farinn að klappa, vinka og hrista hausinn fyrir nei þegar hann vill ekki meira að borða og þegar hann veit að hann er að gera eitthvað sem er bannað. Skemmtilegasta sem hann gerir er að fara í ærslaleik og fótbolta með Halldóri (sem endar samt venjulega með að hann meiðir sig í öllum hamagangnum). Hann kann að kyssa og gera aaaa við mann og er hann orðinn algjör hnoðari og knúsari eins og bróðir hans. Hann er kominn með 7 tennur og er farinn að borða nánast allan mat. Ef ég ætti að lýsa honum í dag myndu þessi orð koma þar við sögu....þægilegur, skemmtilegur, spekúlerant, húmoristi, skapstór, átvagl og ætur (því hann er svo sætur!).

Hér koma svo nokkrar myndir af okkur um helgina.

Vinnan hans Atla er í einu þessara háhýsa



Traffíkin hér er það helsta sem ég gæti aldrei vanist


The Knutsson Klan á hótelinu með Dana Point Harbor í baksýn


VB á sprettinum


Gaurarnir að kæla sig


BCG gengið á ströndinni (Laguna Beach)


Nóg að gera hjá Val við moksturinn


Og hjá Halldóri í surfinu á magabrettinu sínu. Þessa öldu greip hann sjálfur...


...og renndi hann sér mjúklega alla leið inn


Halldór Andri að gefa afrískum páfagauk límonaði

Mamma Knutsson með tvo af gaurunum sínum

Í stuði með pabba

6 Comments:

  • jii tútta mía hvað þið hafið það gott! Myndirnar bera það líka alveg með sér : ) Við höfum það fínt líka. Erum enn í Garðabænum en vonandi flytjum við á Einimelinn í byrjun sept!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:10 f.h.  

  • Frábært að fá að lesa um þetta fjarlæga (bæði í kílómetrum og frá íslenskum raunveruleika!) líf ykkar þarna úti!
    Yndislegir strákarnir þínir og þá er Atli meðtalinn - þótt hinir tveir séu aðeins meira ætir en sá stóri :))
    Kv,
    E

    By Blogger Erla, at 3:46 f.h.  

  • Hæ, þetta er ævintýri hjá ykkur, njótið meðan hægt er.
    Pallason kom í heiminn 16. ágúst, stór og stæðilegur strákur (eins og okkur er einum lagið ) myndir inni á Jónatans-síðu.
    Kveðja Binna

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:42 f.h.  

  • Mín bara orðin amma, cool. Til hamingju með strákinn Binna. Tékka á myndunum á síðunni.

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:54 f.h.  

  • Æðislegt! Þið hafið aldeilis notið helgarinnar, gott hjá ykkur. Erum nýkomin úr ferðalaginu okkar um suður og austurland. Velheppnað og virkilega gaman að sjá alla þessa fallegu staði sem landið okkar geymir.
    En nú hefur próflestur tekið við.. og svo er Dísa að byrja í skólanum á morgun, svaka spennt auðvitað!

    Knús til ykkar allra frá okkur öllum :-)
    S & co

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:30 f.h.  

  • Hæ, bara skilja eftir mig kveðju, langt síðan ég hef heyrt í ykkur. LDH

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:52 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home