California here we come...again

sunnudagur, október 08, 2006

Þreytustrop

God, það er að verða mánuður síðan ég skrifaði hér inn síðast. Það hefur bara verið eitthvað svo mikið að gera undanfarið. Skólinn hjá mér kominn á fullt og reyni ég að nota þann litla tíma meðan Valur sefur á daginn til að lesa og svo þann tíma sem ég hef á kvöldin eftir að búið er að gera allt sem þarf að gera. Síðustu helgar hafa svo farið í ferðalög. Fórum í camping hér upp í fjöll með MBA fjölskyldum síðustu helgi og vorum að koma heim úr ævintýralegri ferð til Arizona í boði BCG. Þótt báðar þessar ferðir hafi verið mjög skemmtilegar þá mæli ég ekki sérlega með svona ferðalögum fyrir svo stuttan tíma þegar maður er að þvælast svona með börn. Við Atli komum skríðandi inn um dyrnar hér áðan og bíðum eftir því að komast í rúmið að sofa, við erum gjörsamlega uppgefin eftir þetta ævintýri og þá helst eftir að hafa ofanaf fyrir krökkunum á flugfvöllum og í flugvélum.

Man annars ekki eftir neinu að segja ykkur í augnablikinu, heilinn á mér er stropaður úr þreytu.

Set fljótlega inn myndir af liðinu.
E

4 Comments:

  • ...og hvernig er svo í náminu?

    By Blogger Betu, at 8:29 f.h.  

  • Bíð eftir myndunum. Bless mamma

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:26 e.h.  

  • Til hamingju með afmælið í gær Valur Björn,ég hlakka til að sjá myndir og lesa hvað á daga ykkar hefur drifið undanfarið.Kær kveðja frá Önnu frænku.

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:10 f.h.  

  • Já til hamingju með litla guttann um daginn!
    Og hættu svo þessari bloggleti stelpa- við hérna langtíburtu viljum fá að vita og sjá!
    Erla

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:33 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home