Jæja, það hlaut að gerast. Við hjónakornin fórum í okkar fyrsta dinner til San Fran í gær og það barnlaus. Við vorum auðvitað ekki lengi að grípa tækifærið þegar tengdó buðust til að passa krakkana. Við fengum grannana Borghildi og Viðar með okkur í lið og sá Atli um að græja kvöldið. Atli gerði staðarvalið að hernaðarleyndamáli og vissum við ekkert hvert förinni var heitið fyrr en við vorum mætt á þennan stað, Asia S/F. Staðurinn var á tveimur hæðum, borðað á efri hæðinni og dansað á neðri. Matsalurinn var mjög þétt setinn ungu fólki og var barstemningin í salnum ríkjandi þar sem matarborðunum var komið fyrir í kringum þennan ílanga bar. Þjónustupíurnar voru allar alveg svaðalegar asískar GELLUR sem hringsnerust í kringum kúnnana með júllurnar út í loftið og ferlega æft sexy varalook.....þið vitið hvað ég á við! Atli þurfti ekki að bíða lengi eftir viðbröðgum frá hópnum því eftir skamma stund vatt Borghildur sér að honum og sagðist vera komin með þetta....þessar píur væru ekkert eðlilegar og hlytu að vera transarar. Ekki veit ég hvernig hún spottaði það svona á fyrstu mínútunum því ég var algjörlega glær. Var bara mikið að furða mig á liðinu en jú, þetta var rétt hjá henni. Allar þessar fegurðardísir voru transarar, karlmenn sem búnir eru að fara í aðgerð....búnir að strauja stellið. Stemningin á staðnum var alveg gríðarleg og maturinn var hrikalega góður. Á hverjum klukkutíma voru píurnar svo með show uppá barborðinu þar sem þær mæmuðu og dönsuðu tryllta dansa. Kvöldið var alveg meiriháttar og því seint gleymt. Við skriðum heim að ganga þrjú, búin að gera út af við tengdó sem sáu hótelrúmin sín í hyllingum. Valur gormur var svo farinn að skrækja á okkur klukkan hálf sjö í morgun en hey, við mössuðum daginn þreytt en ó-súr því þetta var svo þess virði.


Þess má geta að þessi skvísa hér að neðan var Miss TransGlobal 2006 og Leo DiCaprio missteig sig aðeins með að biðja hana um símanúmerið hennar...
Þessi er hjúkka á daginn og í þessu á kvöldin!





Þarna sjáið þið lookið sem ég var að tala um. Þetta var þjónninn okkar!
Jæja, en að merkilegri málum. Sonur minn litli tók fyrstu skrefin sín í dag að viðstöddu fjölmenni. Amma Hildur, afi Guðjón, ég og Atli fylgdumst með þegar litla hetjan tók heil 3 skref óstuddur á pallinum okkar hér úti í dag. Í gær föttuðum við upp á að láta hann labba hér úti með svona göngugrind á undan sér. Síðan þá er hann búinn að vera vitlaus í að komast út að æfa sig. Hann sofnaði klukkutíma fyrr í gærkvöldið því hann var uppgefinn eftir margra tíma labb hér úti í garði. Í dag er hann líka búinn að æfa sig í nokkra tíma og svo skyndilega sleppti hann sér bara og tók þessi þrjú skjálfandi skref og var svo hrikalega ánægður með sig þegar honum tókst þetta (kannski hafa fagnaðarópin í okkur foreldrunum og afa/ömmu haft eitthvað með það að gera!). Læt fylgja með nokkrar myndir af honum með kerruna/göngugrindina.

3 Comments:
Jæja loksins kom að því. Ég er búin að bíða eftir fréttum af því að hann sé farinn að labba. Gott að þið komust aðeins út að skemmta ykkur. Sendi smá pakka með Soffu. Allir biðja að heilsa Bless mamma
By
Nafnlaus, at 11:19 f.h.
Til hamingju með fyrstu skrefin Valur!
En þegar ég las um skvísurnar á Asíska staðnum datt mér strax í hug transarar!
Þegar við vorum eitt sinn í Tælandi voru allar hot konur nebblega karlar. Konurnar höfðu sig ekkert til en transararnir voru hreint út sagt geggjaðslegar bombur!
E
By
Erla, at 3:09 e.h.
Ég þarf greinilega að fara að taka Sóleyju í smá þjálfunarbúðir ef hún á að eiga eitthvað í Val töffara, hún er ennþá bara með tvær tennur og hvorki farin að tala né labba...
...en hún er voða sæt! :)
Annars frábært að heyra hvað allt gengur vel hjá ykkur, endilega haltu áfram að vera svona dugleg að blogga, það er svo gaman að fá fréttir Heyrumst
By
Nafnlaus, at 4:08 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home