California here we come...again

mánudagur, nóvember 06, 2006

Afmæli, halloween og meira

Þetta bloggleysi gengur ekki, er mætt aftur, ferskt með fullt af fréttum, sögum og myndum :)

Valur Björn varð 1 árs sl. þriðjudag. Sá dagur er mikill partý dagur hér í USA þar sem kaninn heldur upp á Halloween þennan dag. Um 10 dögum fyrir Halloween snýst allt tal um hvaða búning þú ætlar að vera í (hjá fullorðnum og börnum), hvort búið sé að fara í pumpkin patch með krakkana og velja pumpkin, hvenær eigi að skera út pumkinið o.s.frv. Halldór Andri var í búning Anakin Skywalker (Star Wars) og Valur litli var lítill blettatígur. Dagurinn byrjaði á að dressa drengina upp í búninga og fara í búningagöngu í skólanum hjá Halldóri en þarna voru saman komnir nokkur hundruð krakkar og foreldrar að horfa á. Valur vakti mikla athygli á svæðinu þar sem hann dansaði stanslaust við háværa tónlistina sem þarna var. Ókunnugt fólk var mætt á hann með videomyndavélarnar til að ná upptöku af stuðinu í honum....ég er að tala um það að krakkinn var að skemmta sér aðeins meira en aðrir....enda fyrsta afmælið hans!
Við vorum svo með litla afmælisveislu fyrir Val um kvöldið. Buðum nokkrum vinum, grilluðum, borðuðum afmæliskökuna og skelltum okkur í trick og treat með krakkahópinn. Atli dressaði sig upp sem eightees-gaur og ég reyndi mitt besta til að líkjast Lilju pinsessu í Star Wars (tókst nú ekki betur en svo en að vera kölluð leðurblöku-Lilja).

Ég verð að segja að ég fíla þennan sið þeirra (sem reyndar er kominn frá Skotum var mér sagt). Kaninn kann að brjóta upp hversdagsleikann með föstu millibili og gera sér glaðan dag. Fá krakkana til að hlakka til einhvers, gera lífið aðeins meira spennandi. Það skemmtilega er svo að það taka allir þátt í svona hlutum, fullorðnir sem börn. Um allan bæ voru halloween vökur, partý hjá fullorðnum, boð fyrir krakka og um leið og það byrjaði að rökkva voru fjölskyldurnar mættar út til að sýna sig og sjá aðra. Þetta var skemmtilegur dagur.

Hér koma nokkrar myndir frá Halloween.

Hildur hin íslenska er með Halldóri í bekk. Hún er Mjallhvít og Halldór Anakin.


Valur dansaði af sér lappirnar í partýinu um morguninn. Hann kom heim og svaf í 3 tíma til að safna kröftum fyrir kvöldgiggið sitt.


Bekkurinn hans Halldórs Andra.

Tilbúnir fyrir afmælisveisluna, beðið eftir fyrstu gestunum.

Indversku nágrannar okkar.

Blásið á afmæliskertið.

Jæja að öðru. Ég er að byrja í þriðja áfanganum í skólanum í vikunni. Þetta hefur bara gengið mjög vel og finnst mér námið skemmtilegt. Það er nóg að gera samt að vera í þessu og með krakkana allan sólahringinn en ég fíla það bara vel. Atla gengur líka rosalega vel með sitt. Hann er á heimleið í viku (til Íslands, Svíþjóðar og Danmerkur) og ætlar að skella sér í nokkur viðtöl. Það er frívika hjá öllum hér sem byrjar 18. nóv þannig að hann ætlar að nota tímann og drífa sig í þessu. Ég verð því ein hér á meðan með krakkana. Mamma og pabbi eru hins vegar að fara til Flórída á þessum tíma að skoða hús (sem þau hyggjast kaupa) þannig að það er spurning hvort ég skelli mér til þeirra með gaurana. Svo fer bara að líða að jólum. Tíminn líður svo hratt hér að það er hreint út sagt ótrúlegt. Það er að verða ár síðan ég kom hingað út með strákana en finnst eins og það séu nokkrir mánuðir síðan. Það er bara nóg að gera, öllum líður vel hér og hafa nóg fyrir stafni.

Jæja, læt fylgja með að lokum nokkrar myndir af hversdagslífinu hér að lokum.

Luv,

Mamma Knutsson.

Svona höfðum við það gott í Arizonaferðinni sem farin var um miðjan okt...mmmm.

Valur úti að leika einhvern morguninn

Halldór æfir fótbolta 1x í viku og keppir 1x í viku. Strákurinn þykir mjög efnilegur.

Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.

Sunnudagsmorgunverðarklúbburinn.

Helsta farartækið hér í Stanford.

Sean og Espe í heimsókn. Halldór og Valur eru mjög hrifnir af þeim....og við auðvitað líka. Espe er dulgeg við að hjálpa mér og passa þá fyrir okkur ef á þarf að halda. Hún er leikskólakennari og hefur ótrúlega gaman af börnum....og þau af henni.

Nokkrar myndir af Val sem teknar voru í gær. Hér er hann í byssó.


Halldór, Viðar vinur hans og "amma Hildur" eins og hún er kölluð en hún er amma hans Viðars og Hildar litlu og býr hér úti hjá þeim

4 Comments:

  • Er litli stubburinn í alvöru kominn í byssó strax haha!
    Litlu skæruliðarnir þínir eru æðislegir!
    E

    By Blogger Erla, at 3:07 f.h.  

  • Innilega til hamingju með litla kút, hann er algjört æði. Sannkallaður stuðbolti. Alltaf jafn gaman að sjá nýjar myndir frá ykkur. Já kaninn kann svo sannarlega að gleðja unga sem aldna með skemmtilegum dögum og uppákomum. Reyndi að hringja til ykkar í gær en enginn svaraði(vona að ég sé að gera þetta rétt....)Held áfram að reyna.
    Annars er allt gott að frétta. Meðgangan gengur vel og eru Eiríku og Brynja mín mjög hjálpleg við heimilisstörfin. Vona að viðtölin hjá Atla gangi vel og að útkoman verði sú að þið flytjist nær okkur. Hlakka til að tala við þig í símann, vonandi í dag. Hafið það sem allra best þangað til.
    Knús og kremj...
    Elísabet.

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:51 f.h.  

  • Glæsilegar myndir. Litli afmæliskútur algjört krútt í búningnum sínum! Ánægð að sjá að þú ert komin aftur í blogg gírinn. Höfum það auðvitað súper gott hér í AZ í yndislegu veðri. Enduðum að vísu Motherload laus í gær þrátt fyrir ítarlega leit í tveimur búðum á svæðinu eftir neiðarsímtal til SanFran í gær.. en ísinn klikkar ekki frekar en fyrri daginn. Leit mun þó haldið áfram að hinni einu sönnu! Jói stakk upp á hvort ekki væri bara hægt að panta eina á netinu!!
    Knús
    Soffa og co

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:59 f.h.  

  • Hæ. Ég var að skoða stubbana og ykkur. Mér finns alveg óþolandi að geta ekki séð ykkur oftar. Það er ekki enn komið á hreint hvar við verðum á Florida, læt þig vita ef ég sé e-n séns. Knúsaðu gaurana frá mér. Halldór er að verða eins og alvöru filmstjarna og Valur er alveg á knúsu og kreistustiginu. Bless mamma

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:07 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home