California here we come...again

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Aphthous stomatitis

Kallinn minn hefur of mikið að gera. Eftir að hann kom úr Skandinavíureisunni hef ég satt best að segja ekki náð neinu sambandi. Sambandsleysið náði svo hápunktinum í gærkvöldi.

Aðdragandinn er þessi. Ég er búin að vera að drepast í munninum síðustu daga, er með helvítis munnangur. Þetta dæmigerða þið vitið innaná vörinni, vont að borða, bursta tennur, er bólgið og aumt og óþægilegt í alla staði. Ég fæ svona munnangur kannski 6 sinnum á ári og fór að spá í þetta og mér dettur allt í einu í hug að googla þetta á netinu. Mér til mikillar undrunar les ég mér til um það á vísindavef HÍ og doktor.is að þetta er sjúkdómur! Þeir tala um þetta sem sjúkdóm! En alla vega. Framhaldið er þetta:

Ella: Atli, ég var að komast að því að ég væri með sjúkdóm.
Atli: Ella, getum við talað um þetta seinna ég er að skrifa ritgerð!
Ella: .......ok!!!???!.............?

En þessari uppteknu elsku er auðvitað fyrirgefið. Hann stendur sig eins og hetja. Rosa einbeittur og erfitt fyrir alla karlmenn að processera tvo hluti í einu, er það ekki málið?

Fyrir áhugasamari einstaklinga um krankleika minn, þá getið þið lesið restina hér fyrir neðan.

(Síendurtekið munnangur lýsir sér með sárum sem eru venjulega staðsett innan á kinnum eða vörum, á tungu, í munnbotni, mjúka gómnum eða koki. Þetta eru eitt eða mörg sár sem geta verið mörg í þyrpingum eða stök sár allt að 1,5 cm í þvermál. Lítill roði er umhverfis sárin, þau eru sársaukafull í 3-4 daga en læknast á 1-2 vikum. Sárin koma aftur og aftur, stundum um það bil mánaðarlega eða nokkrum sinnum á ári og geta verið allt að 10-15 talsins í hvert sinn. Þessi sjúkdómur er algengari hjá konum en körlum og orsök hans er óþekkt en grunsemdir beinast að eins konar staðbundnu svari ónæmiskerfisins án þess að um sé að ræða ofnæmi fyrir einhverju sérstöku. Ekkert læknisráð er þekkt sem læknar þennan sjúkdóm en talið er að skortur á járni, B12-vítamíni og fólínsýru geti gert hann verri. Hægt er að draga úr óþægindunum með staðbundinni lyfjameðferð, m.a. staðdeyfilyfjum og sterum. Síendurtekið munnangur hefur tilhneigingu til að koma þegar eitthvað bjátar á eins og til dæmis umgangspestir eða streita.

Ert þú kannski haldin(n) þessu fyrirbæri líka? Endilega komdu þá með eitt komment og láttu mig vita að ég sé ekki ein í heiminum með þennan leiðinda sjúkdóm!

Seinna.

2 Comments:

  • ég mótmæli þessari framsetningu á "staðreyndum"....samtalið var aðeins öðruvísi: Ella byrjaði að tala um munnangrið sitt og ég mátti ekki vera að því að skoða´skoltinn á henni. Ekki meira um það að segja! En hún hefur húmor, þessi elska.

    Kv.

    A

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:36 e.h.  

  • Sæl Ella.
    Bara láta þig vita að þú ert ekki ein um þetta vandamál.
    kv. Binna

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:07 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home