California here we come...again

þriðjudagur, desember 12, 2006

Gracias

Búin að eiga frábæran dag í dag. Maðurinn minn og strákarnir vöktu mig kl. 7 í morgun, búnir að fara í franska bakaríið og búa til heitt kakó. Svo fékk mín smá gjöf frá genginu og frí frá öllum heimilisstörfum :) Love you guys. Takk fyrir allar kveðjurnar, msn-samræðurnar og símtölin sem ég hef fengið í dag frá ykkur. Love you too. Fékk m.a.s. eitt jólakort í dag með mynd og öllu....æði:) Frábært að fá svona dag....já kellingin á afmæli í dag fyrir þau ykkar sem gleymdu mér :) Opnaði meilinn minn hjá HÍ í morgun og á móti mér tók þessi fínasta afmælissinfonía, þeir eru farnir að kunna þetta þarna í HÍ, hahaha.

Það er því bara tóm hamingja í Stanford í dag. Er reyndar að læra fyrir próf sem ég fer í í lok vikunnar en það er bara fínt eftir að hafa verið ein með litlu monsterin mín síðustu daga meðan Atli var í prófum. Finnst fínt að fá smá break núna, loka mig af og vera ein með mína hluti í smá tíma :)

Jæja, skrifa ykkur í lok vikunnar og læt vita hvert við förum í frí. Ætlum samt að vera komin heim fyrir jól og eyða þeim saman hér.

Luv,
Mamma Knutsson.

1 Comments:

  • Til hamingju með daginn í gær frænka. Kveðja frá Elínu, Unni og co.

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:42 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home