Veikindi
Valur aftur orðinn veikur. Fór á bráðamóttökuna í gærkvöldi, nánast í andnauð. Er hrikalega kvefaður og var farinn að anda með látum. Er með mikla barkabólgu og fékk úða og sterameðferð við þessu í gærkvöldi svo þetta myndi aðeins lagast og svo hann gæti sofið. Hann hafði sofið mjög illa í tvær nætur...og við auðvitað líka...vegna hósta. Hann er búinn að fá sinn skammt af pestum þennan veturinn. Vona að þessi verði sú síðasta.
Bráðamóttakan hjá Stanford Hospital er annars ekkert slor. Þegar komið er á bráðamóttökuna er hjúkka á biðsofunni sem metur nauð sjúklinga. Barn í andnauð gekk augljóslega fram fyrir röðina og var biðin því nánast engin. Sérstakt móttökuherbergi er fyrir börn. Þegar komið er svo inná bráðamóttökuna sjálfa fær hver sjúklingur sitt herbergi sem hann bíður á, er skoðaður á og bara er á þar til hann fer. Hvert herbergi er svo innréttað með sjónvarpi, DVD, fullt af dvdmyndum, nettengdri tölvu, dóti og bókum fyrir börn. Allt fyrsta flokks. Valur þurfti að bíða í 2 klukkutíma eftir að hann var búinn að fá sterana til að sjá hvernig hann myndi bregðast við þeim. Spólu var því skellt í tækið, Valur sofnaði, smá veitingar voru veittar og úr þessu varð bara cozy laugardagskvöld á bráðamóttökunni :)
Það er spáð svaka hita hjá okkur í dag, 70. Man ekki hvað það er á celsíus. Það er æði að fá nokkra svona hitakafla um hávetur. Rigningatíminn, sem einkennir veturinn hér, hefur reyndar ekki enn látið á sér kræla. Vonandi kemur hann bara ekki neitt.
Fengum úthlutaðri lóð í Garðabænum og erum við auðvitað hæst ánægð með það. Viljum helst vera í Garðabæ. Þetta endaði allt með því að dregið var um lóðirnar að viðstöddum nokkrum umsækjendum. Við vorum því alveg stálheppin.
Jæja, ætla að sinna veiku barninu hér.
Síðar,
E

3 Comments:
En leiðinlegt að heyra af veikindum litla kúts, vonum að hann nái sér fljótt og vel!
Batakveðjur frá öllum á T9
By
Nafnlaus, at 3:20 f.h.
Vona að Valurinn nái sér fljótt og hætti þessum pestagangi.
Til hamingju með lóðina, það voru fínar myndir á fréttablaðinu í dag af skipulaginu.
Lilja
By
Nafnlaus, at 10:57 f.h.
Leiðinlegt að heyra með Val. Vonum að þetta verði hans síðasta pest í bili...
Innilega til hamingju með lóðina það verður æðislegt að fá ykkur í Garðabæinn.
Sendum ykkur hlýjar og heilsubætandi kveðjur vestur um haf.
Knús,
Elísabet og co.
By
Nafnlaus, at 12:10 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home