California here we come...again

föstudagur, apríl 30, 2004

Pósturinn Páll

Fór í póstkassan okkar nú í kvöld og tæmdi nokkur kíló af pósti, cuponum og öðru auglýsingaefni úr honum. Við erum afar löt að tékka á póstinum okkar, ég bara gleymi því eiginlega alltaf. Heima liggur pósturinn annað hvort úti um allt á gólfinu þegar maður kemur heim eða maður sér úttroðinn póstkassann á leiðinni inn í húsið. Hér eru póstkassarnir pínu frá húsinu og eru þeir hafðir allir saman fyrir allt hverfið. Maður þarf því að gera sér smá ferð hér til að nálgast póstinn sinn!

Þessi póstsaga er svo sem ekki merkileg nema að í hólfinu leyndist lítið bréf frá California State University, Psychology department. Sem sagt bréfið var frá öðru af tveimur prógrömunum sem ég sótti um í við skólann. Bréfið byrjaði ekki skemmtilega.....því miður....og svo hélt það áfram. Já, því miður. Það komust tveir einstaklingar að í þessu prógrami (venjulegast eru það um 10-12) þar sem prófessorinn sem er yfir þessu er víst að fara á eftirlaun. Hann skuldbindur sig til að fylgja þeim nemendum sem byrja nú eftir og treysti hann sér ekki í meira en að tvo nemendur. Þá er bara að krossleggja fingur og vona að ég fái ánægjulegra bréf sent frá hinu prógraminu (sem er reyndar nákvæmlega sama námið nema að það bætist við það ráðgjafahluti og er námið undir annari deild). Ég er samt síður spennt fyrir því....þarf að hugsa þetta betur. Ég er eitthvað samt pínu svartsýn á þetta núna þar sem ég er ekki með neinn bakgrunn eða starfsreynslu í þessu fagi annað en intro áfanga sem ég tók í sálfræðinni! Aldrei get ég haldið mig við það sem ég er byrjuð að læra eða vinna.

Jæja, nenni ekki að vera að velta mér upp úr þessu nákvæmlega núna, vildi bara deila þessum leiðinlegu fréttum með ykkur. Atli var að koma heim úr 3 daga ferð, sundlaugin okkar opnar á morgun, við erum að fara í brúðkaup á morgun og að lokum er því spáð að hitamet falli hér um helgina þannig að það verður flatmagað í sundlauginni á sunnudaginn. Eftir það tekur alvaran við og ég leggst yfir þetta.

miðvikudagur, apríl 28, 2004

Reality tékk.....einn, tveir, einn, tveir

slaka, slaka, slaka. Aðeins að lagfæra smá misskilning sem hefur komist á kreik heima....ég setti inn á myndasíðuna mynd af bumbunni hennar Erlu vinkonu sem var hjá mér fyrir nokkrum dögum, hún er ófrísk sko. Þetta er sem sagt ekki bumban mín, hef nóg með mína fyrrverandi bumbu!

Dagurinn í dag

Jæja, Atli farinn til Seattle, Halldór Andri farinn á leikskólann og ég ætla að gera mér dagamun og skella mér í MOLLIÐ að shoppa. Mig vantar eitthvað til að fara í í brúkaup sem okkur er boðið í næsta laugardag þar sem gámurinn er ekki enn farinn að láta sjá sig (og inniheldur öll sparifötin mín). Það fylgja því sem sé bæði kostir og ókostir að hafa ekki dótið sitt.....mér finnst ótvíræður kostur að geta auðveldlega afsakað öll fatakaup. Það verður ægilega gaman að kíkja í kvöldbrúðkaup á ströndinni með tilheyrandi partýi á laugardaginn. Bob í vinnunni hans Atla er að giftast henni Unni sinni frá Íslandi. Helsta vesenið er að redda pössun fyrir HA. Er samt búin að hafa samband við eina 18 eða 19 ára sem ég fékk upplýsingar um hjá kerlunum hjá Össuri. Hún ætlar að kíkja á okkur á fimmtudaginn og kemur svo og passar dunkinn á laugardaginn......krossum bara fingur og vonum að hann taki henni vel. En varðandi brúðkaupið þá er parið að gifta sig í þremur löndum, spáið í því. Fyrsta brúðkaupið er hér í USA og er það fyrir vini þeirra hér. Í sumar halda þau til Íslands og gifta sig þar fyrir fjölskyldu Unnar. Í haust halda þau svo til Indlands og ganga í það heila þar fyrir hans fjölskyldu (en hann er sko frá Indlandi!). Okkur er auðvitað boðið í öll brúðkaupin og aldrei að vita hvort maður skelli sér til Indlands í haust.

Update á öðrum málum.....þið eruð ábyggilega orðin massa þreytt á öllu þessu pödduröfli í mér en ég bara get ekki fengið nóg af því að segja ykkur hvað er að gerast í þeim málunum. Termítabaninn er sem sagt að koma í dag milli kl. 3 og 5 og ætlar að ganga í málið. Þetta er víst rosa aðgerð. Hann þarf að bora göt í steypuna í skúrnum til að ná að setja eitur í jarðveginn undir húsinu og ég veit ekki hvað og hvað......hann veit samt ekkert um að ég er nýbúin að mála gólfið og kítta upp í öll jarðvegsgöt....vona að það breyti engu fyrir hann (kannski að það sé bara meira að bora fyrir hann)!

Eitt enn áður en ég hætti. Fór í gær og skráði Halldór Andra á skautanámskeið í 8 vikur....haha, sjáið þið hann í anda :). Hann ætlaði ekki að trúa því þegar við gengum inn í skautahöllina til að skrá hann að hann fengi að fara á skauta. Hann er í skýjunum yfir þessu. Þetta er byrjendanámskeið fyrir 2,5 til 3,5 ára gamla krakka. Svo er bara að bíða í tvær vikur eftir að körfuboltinn byrjar.

Knús og kossar heim til Íslands....ps. komnar nýjar myndir

mánudagur, apríl 26, 2004

Update á pöddumálunum

Ég fékk tilfelli hér um daginn þegar ég var að mála bílskúrsgólfið. Ég hreinsaði náttúrulega gólfið allt áður en það var málað. Ég hreinsaði sérstaklega þann stað sem pöddugaurinn taldi að termítaflugurnar hefðu komist upp um. Gólfið í bílskúrnum er steypt og meðfram veggjunum er ca 1 cm ber jörð en þetta er víst haft svona því jörðin hér er alltaf á hreyfingu. Upp um eina af þessum raufum komu termítaflugurnar. Áður en ég fer lengra inní það sem gerðist þá ætla ég aðeins að fara í termítafræðin með ykkur en ég hef verið að lesa mér til um þetta á netinu!

Jarðvegs-termítabú eru samsett úr þrennskonar termítum. Swarmers, workers og soldiers. Swarmers eru þessar flugur sem við fundum um allt hús hjá okkur. Þeir fara úr búinu, sleppa vængjunum og makast til að byggja upp nýtt bú. Workers eru þeir sem sjá búinu fyrir næringu og eru þeir sem éta viðinn. Þeir búa sér til moldargöng og nota þau til að fara upp og sækja sér við og fara með næringuna niður í búið. Svo eru það soldiers sem verja búið.

Þegar ég svo var að mála gólfið tek ég eftir einni moldarák á vegnum. Ég braut hana auðvitað og út úr henni komu fullt af gulum litlum pöddum. Ég hreinsaði þetta og málaði yfir. Daginn eftir er þetta sem sé komið aftur. Þegar ég fór að kanna málið frekar kom í ljós að þetta voru worker termítarnir í búinu.......viðbjóðslegt. Þetta er sem sé beint undir gólfinu í bílskúrnum og er farið að éta veggina þarna niðri. Ég er búin að vakna upp með martraðir síðustu nætur og er hreinlega búin að sofa illa síðan þetta gerðist.

Atli talaði við Dean og sagði honum að þetta gengi ekki, termítarnir væru komnir aftur og værum við búin að finna blessuðu workerana sem væru að éta húsið hans. Hann samþykkti að borga fyrir langtíma eitrun á búinu og er ég í skýjunum yfir því. Við erum samt ekki enn búin að fá tíma og gætum við þurft að bíða í nokkrar vikur eftir því að hann komi.

Ég veit ekki alveg hvort ég sé að meika að búa í termítahúsi.......langar alveg að flytja eitthvað annað! Þarf að tékka á hvort tryggingarnar okkar nái yfir termítaétið innbú! Hvað á ég að gera? Öll ráð þegin. (Getið sent mér comment með því að ýta á comment hnappinn hér fyrir neðan og skrifað mér)

Helgin

Veðrið á laugardaginn var alveg æðislegt. Við sóttum Atla á flugvöllinn um hádegisbil (var að koma heim frá 5 daga Flórídaferð) og keyrðum út í litla sæta eyju hér rétt hjá sem heitir Balboa. Þetta er voða krúttleg eyja þar sem allir eru á hjólum, hjólabrettum, rúlluskautum eða línuskautum. Ef eitthvað af þessu vantar í safnið þá er minnsta mál að skella sér á næsta horn og leigja þennan búnað. Við ákváðum samt að skella okkur bara á ströndina í Balboa eins og margir aðrir þennan heita dag og hafa það náðugt (línuskautarnir verða teknir seinna, kannski þegar gámurinn lætur sjá sig!). Þar steiktum við okkur (og kældum af og til í sjónum) fram eftir degi en skelltum okkur svo á göngugötuna við höfnina síðla dags þar sem Atli, Viggi og Halldór Andri fóru í klessubíla. Þegar heim var komið var hafist handa við að elda gómsætan mat (svínakótilettur og meðlæti) en Erla sá að mestu um þetta. Eftirrétturinn setti svo punktinn yfir allt saman en haldið þið ekki að hún Erla hafi töfrað fram þetta frábæra jarðaberjapæ með ís, heitri súkkulaðisósu og vanillurjóma........fenguð þið vatn í munninn? Þetta var jafn gott og þetta hljómar.

Í gær var ferðinni heitið til Mexico en við ákváðum að kíkja til Tijuana sem er borg eða bær rétt við landamærin. Við keyrðum að landamærunum, lögðum bílnum í USA og tókum strætó yfir landamærin og inn í miðbæ Tijuana í Mexico. Hemm...þetta var nú meiri borgin eða bærinn eða hvað þetta var nú. Þarna var fíla, allt skítugt, fátækt greinilega mjög mikil, allir að reyna að selja manni eitthvað, börn betlandi og ég veit ekki hvað og hvað. Við löbbuðum eina verslunargötu og eitthvað aðeins út fyrir hana og skoðuðum markaðina og búðirnar. Málið var að allir voru að selja það sama, skartgripi, teppi, styttur og eitthvað junk sem allt var eins. Strákarnir urðu svangir á göngunni og urðu fegnir þegar þeir sáu Hard Rock og fóru inn til að fá sér borgara. Ég og Erla erum sammála um að þetta voru verulega einkennilegir borgarar (við neituðum að borða þarna og fengum okkur því ekkert). Það er nú slæmt ef maður getur ekki einu sinni treyst því að fá ósýktan mat á Hard Rock! Strákarnir veiktust nú samt ekki! Ætli við höfum ekki verið í Tijuana í um 2-3 tíma en þá var strætóinn tekinn til baka. Þetta var verulega skrýtin upplifun að vera þarna.....veit eiginlega ekki hvað ég á að segja um þetta en ég held ég fari nú ekki aftur! Eftir að heim kom þurfti allt liðið að fara í sturtu til að ná af sér drullunni frá Tijuana.

Í dag var svo hangið við laugina og slappað af. Erla og Viggi fara svo í fyrramálið og Atli þarf víst líka að fara til Seattle annað kvöld til föstudagskvölds. Ég og Halldór Andri verðum skyndilega ein eina ferðina enn. Það á eftir að verða frekar dapur eftir allan þennan frábæra tíma með Erlu og Vigga!

föstudagur, apríl 23, 2004

Dagurinn í dag

Vaknaði snemma í dag, kom Halldóri Andra á leikskólann og skellti mér í að mála síðustu umferðina á bílskúrinn. Þetta er allt annað. Viggi kíttaði svo upp í gólfið meðfram öllum veggjum og ætti það að halda einhverjum pöddum úti! Skelltum okkur svo á ströndina í Laguna Beach og lágum þar eins og skötur í steikjandi hita. Skiptum um umhverfi um miðjan dag og lögðumst á bekkina við sundlaugina og héldum áfram að sóla okkur þar. Halldór Andri var í essinu sínu í dag, ekki búinn að stoppa síðan ég náði í hann. Ég er búin að komast að hann getur ekki þagað í meira en í 2-3 sekúndur í einu. Það er ÓTRÚLEGT hvað hann blaðrar. Ég verð nú bara að segja það að ég finn verulega fyrir ömmuskortinum hér úti.....ætla að taka mér smá break þegar Atli kemur heim á morgun.....úff.

fimmtudagur, apríl 22, 2004

Bílskúrinn

Ég ætlaði að vera svo hrikalega dugleg í gærkvöldi og grunna bílskúrinn áður en hann yrði málaður. Ég svæfði Halldór kl. 8 en viti menn, ég sofnaði auðvitað. Ég vaknaði samt aftur um 11 og hófst handa. Þá kom í ljós að grunnurinn var bara fyrir gólf sem ekki hafa verið máluð (hrá steypa). Ég endaði því á að grunna bara smá svæði í skúrnum sem ekki hafði verið málað áður og þar með var grunnmálinu lokið. Ég setti svo fyrstu umferðina af málningu á gólfið í morgun og held þetta verði bara ágætt en það er engin spurning með að ég þarf að mála veggina líka. Held þetta sé rétt rúmlega 20 ára gamalt hús og bílskúrinn hefur svei mér þá líklega ekki verið málaður síðan!

Ég skellti mér líka til YMCA (þeir sjá um æskulýðsstarf) áðan til að tékka á hvort ég sæi ekki eitthvað sniðugt fyrir Halldór Andra að gera með leikskólanum. Fann fínt prógram fyrir hann þarna bæði í körfubolta og fótbolta. Þetta eru prógröm fyrir 3-4 ára gömul börn og byrjar hann í þessu í kringum miðjan maí. Held við setjum hann í körfuboltann til að byrja með til að hann fái aðeins að kynnast öðru en fótbolta! Einnig er hægt að fara með hann á klifurvegg í klettaklifur um helgar en hann fór nokkrum sinnum með mér í svoleiðis heima á Íslandi. Það er því nóg fjör hjá honum framundan.

miðvikudagur, apríl 21, 2004

Kominn tími á smá fréttir!

Jæja, loksins hef ég tíma til að setjast niður í rólegheitunum og skrifa ykkur smá fréttir. Erla, vinkona mín úr vinnunni, og maðurinn hennar hann Viggi komu til okkar á föstudaginn síðasta og hef ég ekki viljað eyða tímanum við tölvuna meðan þau eru hér. Þau eru á smá ferðalagi um USA, komu til okkar eftir verslunarleiðangur í New York og ætla að vera hjá okkur þangað til næsta þriðjudags. Þau skruppu til Las vegas í dag og koma aftur annað kvöld. Atli er á vinnusýningu niðri í Flórída og kemur ekki fyrr en á laugardaginn þannig að við Halldór Andri erum því skyndilega ein heima!

Tímann ætla ég að nota í að þrýfa bílskúrinn, mála þar gólfið og kítta í rifurnar meðfram veggjunum (þar sem termítarnir komu upp). Ég klæddi mig í skítagallann í morgun og hófst handa við að sópa niður alla köngulóavefi af veggjum, hillum og lofti (held ég hafi náð að safna nægum vef í púða). Gólfið var þrifið og skrúbbað og í kvöld mun ég setja grunninn á gólfið. Málningin fer svo á á morgun og kíttið fer svo síðast (Viggi útfærði þetta allt fyrir mig enda fagmaður). Það er svo aldrei að vita nema að ég skelli einhverju á veggina þarna niðri líka. Ég gat ekki haft þetta eins og þetta var, skítugt pöddubæli. Svo á þvottavélin og þurrkarinn að fara þarna inn.....og allur þvotturinn.....to much shit for me. Ég er náttúrulega alveg að gefa leigjandanum þessa vinnu og efniviðinn. Atla fannst þetta algjört spreð (100-200 dollarar) en mér finnst þetta þess virði þegar maður er þarna með fötin sín og er að vinna þarna inni. Hann á eftir að vera ánægður með þetta þegar vinnan er búin og hann sér hvað þetta verður miklu betra. Dean, sá sem leigir okkur, kom einmitt hér við í morgun þegar ég var kominn í málningargallann. Hann var bara að tékka á hvort allt væri ekki í standi. Hann neitar enn að borga þessa langtíma eitrun fyrir termítana, segir að þetta hafi gerst hjá sér fyrir 2 árum en þá var eitrað í sárin eins og var gert núna og termítarnir sáust víst ekki fyrr en núna þegar við komum. Hann lofaði að framkvæma þessa eitrunar-aðgerð ef ég sæi aftur einn termíta á vappi inni hjá mér....ég vona að það komi ekki til þess! Þessi aðgerð mín í bílskúrnum vonandi hjálpar til við að halda þeim þarna niðri.

Það er búið að vera frábært að hafa Erlu og Vigga, þau eru bara alveg frábær. Við erum aðallega búin að taka því rólega, fara á ströndina og liggja í sólbaði. Svo er auðvitað búið að fara með þau í nokkrar búðir og kynna þau fyrir TARGET (búið þar sem allt er til í og kostar ekki neitt......en safnast samt þegar saman kemur). Erla var ekki lengi að taka Target-veikinni (eins og Atli kallar þetta), það þurfti að ná henni þarna út með brögðum.

Um helgina skelltum við okkur öll upp til Santa Monica, en tilgangurinn var helst sá að kíkja á bíl sem Atla langaði í og var búinn að sjá á netinu. Bíllinn var algjört æði á góðu verði þannig að hann var keyptur daginn eftir. (Læt mynd af honum á myndasíðuna bráðlega fyrir áhugasama!) Við notuðum auðvitað ferðina í að skoða okkur um í Santa Monica, löbbuðum göngugötuna þar og sáum hina og þessa performera á götunni. Þarna var ægilega fínt flamingo band, breakdansarar og annað áhugavert. Í lok dags kíktum við svo aðeins til LA þar sem við m.a. keyrðum um Hollywood Hills og skoðuðum þessa skrýtnu borg. Mér finnst nákvæmlega ekkert spennandi við hana, einhvern veginn ekkert að sjá og maður veit eiginlega ekki hvað maður á að gera þarna. Ég hef heyrt að fólki sem flytur þangað líður svona fyrsta árið en svo allt í einu fattar það borgina. Spurning hvort það gerist nokkuð hjá okkur þar sem við búum jú talsvert sunnar en LA! Á planinu er svo að skella sér öll saman til Mexiko. Ætli við gerum það ekki á sunnudaginn þegar Atli er kominn til baka. Ekkert af okkur hefur komið þangað áður þannig að þetta verður spennandi. Sú ferðasaga verður rituð hér síðar.

Halldór Andri er svoleiðis búinn að vera með munnræpuna síðan Erla og Viggi komu. Hann leggst á alla Íslendinga sem koma hingað og notar þá eins og hann getur til að spjalla og leika við. Hann er samt voða ánægður í leikskólanum en líklega er hefur hann mikla þörf þegar hann kemur heim til að tala þar sem hann getur lítið tjáð sig enn á enskunni. Kennarinn hans segir samt að hún sjái daglega mun á honum. Hann sé núna farinn að leika við nokkra krakka þarna sem eru á hans aldri þótt hann tali ekki. Hann sé hins vegar farinn að skilja mjög mikið. Hún er mjög strangur kennari með reglurnar á hreinu. Ég held að það sé mjög gott fyrir Halldór því ég sé (get fylgst með honum í gegnum einsætt gler) að hann veit hvað hann á að gera inni hjá henni, hvað er í gangi og annað slíkt. Í hinum stofunum, þar sem kennararnir eru ekki jafn mikið á kafi í reglunum, er hann svolítið lost og eirðalaus. Held við höfum valið vel að setja hann í bekkinn hjá henni. Hann er bara þannig týpa að hann þarf að hafa allt í föstum skorðum og hún sér til þess að svo sé.

Jæja, skrifa á morgun og læt ykkur vita hvernig tókst með bílskúrinn. Setti inn nokkrar nýjar myndir ef þið hafið áhuga á að skoða!

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Ég trúi þessu ekki!

Hvað haldið þið að hafi gerst í gær. Termítagaurinn sem átti að koma og eitra fyrir termítunum hringdi í gærkvöldi og lét Atla vita að því að Dean (sá sem á húsið og leigir okkur) hafi hringt í sig og cancelerað eitruninni á termítunum sem átti að fara fram 20. apríl næstkomandi. (Róleg....þegar termítakarlinn kom hingað og skoðaði aðstæður eftir innrásina miklu þá eitraði hann tímabundið á öllum þeim stöðum sem termítarnir gátu komið upp en það var bara tímabundið þannig að....we need something more). Atli bað hann vinsamlegast að halda þessum tíma lausum og ætlar að tala við karlasnann hann Dean í dag. Hann talar ekki um annað en hvað hann eigi mikla peninga karlinn að hann hlýtur að geta spanderað 1200 dollörum í að bjarga húsinu sínu frá því að vera étið niður af termítum. Get alveg sagt ykkur það að það verður eitrað fyrir kvikindunum eða þá að ég er flutt!

Halldór Andri stendur sig eins og hetja á leikskólanum. Við byrjuðum í gær á löngum degi og tókst það alveg frábærlega. Hann lagði sig bara eins og allir hinir og ekkert mál. Við fórum svo í stærstu dótabúðina á svæðinu (Toys r´us) eftir leikskóla þar sem HA mátti velja sér eitt dót því hann hafði verið svo hrikalega duglegur. Ég held við höfum verið í 2,5 klst í búðinni þangað til minn var búinn að ákveða sig. Endaði á að kaupa veiðistöng og fiska sem hægt er að henda í laugina og hann getur dundað sér við að veiða. Að auki fékk hann hnattlíkan fyrir 3ja - 6 ára krakka sem mér fannst svo sniðugt og vildi endilega að hann eignaðist! Hann var voða glaður með þetta. Þegar ég var svo að kveðja hann í leikskólanum í morgun sagði ég honum að hann yrði að vera aftur alveg svaka duglegur og góður. Þá segir hann auðvitað: "....já, og svo förum við í dótabúðina þegar ég er búinn í leikskólanum og er búinn að vera voða stór strákur"!

mánudagur, apríl 12, 2004

Páskahelgin

Jæja, þá er ég búin að koma upp smá heimasíðu þar sem þið getið fylgst með hvað er að gerast hér í OC (stendur fyrir Orange County). Ég var orðin pínu þreytt á að skrifa sömu rulluna til allra þannig að ég held að þetta sé nokkuð góð lausn.....fyrir alla.

Við höfðum það mjög gott yfir páskahátíðina. Atli tók sér frí á föstudaginn langa (þótt flestir hér hafi eytt deginum við skrifborðið sitt) til að ganga frá lausum endum í sambandi við þessa flutninga okkar. Við enduðum svo daginn í Fashion Island sem er æðislegt útimoll hér í bænum og trekkir það til sín fjölskyldufólk í miklum mæli því þar er mikið um að vera fyrir börn. Halldór Andri fór í hringekju, dýrabúðina og eyddi góðum tíma í að reyna að veiða laxa í gosbrunni með veiðistöng sem hann hafði búið til (sleit niður eitthvað risagras sem hann fann og reyndi að pota í fiskana með því). Hann hefði getað eytt öllum deginum með fiskunum, þá aðallega í að finna út af hverju honum tókst ekki að veiða neitt!!! Hann er frekar fyndinn sá litli.

Á laugardagsmorguninn fórum við á páskahátíð hjá hverfinu. Þetta var rosalega gaman, þarna var páskakanínan (kaninn getur verið svolítið furðulegur, eru með páskakanínu sem dreifir eggjum, passar ekki alveg) og alls konar húll um hæ fyrir krakkana. Halldór Andri skemmti sér konunglega. Við hittum svo vinafólk okkar hér (Bob sem vinnur með Atla og hana Unni frá Íslandi en þau eru á leið í það heilaga). Við elduðum þetta himneska ástralska lambalæri sem við fundum og get ég sagt ykkur að það var ekki síðra en það íslenska. Það vildi svo til að þau voru að passa íslenska krakka sem Halldór var ekki lengi að vingast við. Hann hefur ekki almennilega getað leikið við krakka hér síðan við komum út út af tungumálinu.

Sunnudagurinn fór í afslöppun við sundlaugina þar sem tveir íslendingar úr vinnunni hans Atla búa (okkar opnar ekki fyrr en í maí af óskiljanlegum ástæðum). Veðrið var algjört æði en við pössuðum okkur auðvitað að maka á okkur vörn....það verða sko engar steikingaolíur keyptar á þessu heimili þegar maður býr við þetta allan ársins hring.

Halldór Andri fór svo aftur í leikskólann í dag eftir viku vorfrí. Hann er voða duglegur strákurinn, er búinn að fara alveg einn núna í 2-3 vikur. Hef reyndar bara haft hann til hádegis en úr því verður bætt á morgun því þá ætlar hann að vera allan daginn eða frá hálf níu til hálf þrú. Ég er búin að velta þess mikið fyrir mér hvernig ég eigi nú eiginlega að hafa þetta. Ég er náttúrulega heima allan daginn eins og er og því væri náttúrulega bara fínt að hafa hann til hádegis. Ég held samt að best sé að reyna að koma honum inn í tungumálið eins hratt og mögulegt er svo hann geti farið að leika við krakka og annað slíkt. Er því komin á það að hafa hann allan daginn í þennan tíma.....vorkenni honum samt svo eitthvað...

Jæja, þetta er orðið gott í bili. ATH hér til hliðar undir LINKS getið séð......haldið ykkur........MYNDIR af stráknum og okkur hinum. Fyrir ykkur tölvunördana (tengdó, mamma og fleiri) þá smellið þið á "oc living MYNDIR" undir LINKS með músinni og tara...myndirnar koma upp.