California here we come...again

laugardagur, maí 26, 2007

Sól, sól...

Nú fer aldeilis að styttast í flutninga hjá okkur hér. Ég kláraði síðasta prófið mitt í vikunni en Atli á viku eftir af skólanum hjá sér. Það er búið að pakka öllu sem á að fara í gám þannig að við náum að sjúga upp síðustu Stanfordminningarnar í rólegheitunum með léttvín í annari og sólina í hinni. Gámurinn kemur í næstu viku, ætlar að ferja drasl tveggja fjölskyldna yfir Atlantshafið, og keppumst við nú um að fylla gáminn af alls kyns kræsingum úr Crate and Barrel og öðrum amerískum gæðabúðum.

Það er degurdagur hjá okkur stelpunum í dag og er planið að skella okkur til San Jose nú upp úr hádegi og liggja þar á sundlaugarbakkanum með koteila og slúðurblöð í allan dag, fá okkur smá nudd og fara svo út að borða. Á meðan ætlar Atli að taka strákana í póker svo kellan hafi nú efni á að lifa lífinu aðeins :)

Já, það er ekki leiðinlegt að vera í Cali þegar shopping og sólböð eru á dagskránni á hverjum degi. Það er hins vegar svolítið skrýtið til þess að hugsa að við séum að fara eftir nokkrar vikur. Ævintýrið er hins vegar ekki búið hjá okkur því Danmörk tekur við og vonum við að það verði ekki síðra ævintýri. Við erum farin að hlakka mikið til að sjá fjölskyldu og vini, enda orðið pínu of langt síðan. Eitt ár!

Luv í bili.
E

laugardagur, maí 12, 2007

Myndir liðinna daga

Skelltum okkur í dagsferð og hittum um nokkra MBA félaga og fjölskyldur úti á landi fyrir nokkrum helgum. Hér er Esperanza og Valur að leika
Sundgarpar settu met og sátu í ísköldu vatninu í nokkrar mínútur...mamma beið með hlýtt teppi handa yngsta garpinum
Atli og Halldór Andri úti á hjólabát
Valur og uppáhaldið

Hið mánaðarlega stelpupartý okkar vinkvennanna klikkaði ekki og var haldið fyrir nokkrum dögum...
Atli bauð mökum þeirra í póker á meðan...þegar langt var liðið fram á nótt var ákveðið að gera innrás...
og tékka á hvað væri að gerast hjá þeim
Halldór Andri og Hildur að glápa á TV saman eftir skóla

Halldór í nýja Judo gallanum
Bræður á býflugnaveiðum..sem endaði með því að báðir voru stungnir í puttana

Movie night úti í garð í gærkvöldi þar sem Happy Feet var sýnd við góðar undirtektir. Boðið var upp á popp og heitt kakó.
Halldór gæðir sér á poppi á meðan fylgist með Happy Feet
Val finnst ís MJÖG góður
Bræður að skoða caterpillars sem Halldór var búinn að veiða í skordýrabúið sitt en þeir eru báðir miklir áhugamenn um skordýr og önnur kvikindi sem við foreldrarnir kærum okkur ekki mikið um