California here we come...again

laugardagur, september 16, 2006

Bara í SanFran

Jæja, það hlaut að gerast. Við hjónakornin fórum í okkar fyrsta dinner til San Fran í gær og það barnlaus. Við vorum auðvitað ekki lengi að grípa tækifærið þegar tengdó buðust til að passa krakkana. Við fengum grannana Borghildi og Viðar með okkur í lið og sá Atli um að græja kvöldið. Atli gerði staðarvalið að hernaðarleyndamáli og vissum við ekkert hvert förinni var heitið fyrr en við vorum mætt á þennan stað, Asia S/F. Staðurinn var á tveimur hæðum, borðað á efri hæðinni og dansað á neðri. Matsalurinn var mjög þétt setinn ungu fólki og var barstemningin í salnum ríkjandi þar sem matarborðunum var komið fyrir í kringum þennan ílanga bar. Þjónustupíurnar voru allar alveg svaðalegar asískar GELLUR sem hringsnerust í kringum kúnnana með júllurnar út í loftið og ferlega æft sexy varalook.....þið vitið hvað ég á við! Atli þurfti ekki að bíða lengi eftir viðbröðgum frá hópnum því eftir skamma stund vatt Borghildur sér að honum og sagðist vera komin með þetta....þessar píur væru ekkert eðlilegar og hlytu að vera transarar. Ekki veit ég hvernig hún spottaði það svona á fyrstu mínútunum því ég var algjörlega glær. Var bara mikið að furða mig á liðinu en jú, þetta var rétt hjá henni. Allar þessar fegurðardísir voru transarar, karlmenn sem búnir eru að fara í aðgerð....búnir að strauja stellið. Stemningin á staðnum var alveg gríðarleg og maturinn var hrikalega góður. Á hverjum klukkutíma voru píurnar svo með show uppá barborðinu þar sem þær mæmuðu og dönsuðu tryllta dansa. Kvöldið var alveg meiriháttar og því seint gleymt. Við skriðum heim að ganga þrjú, búin að gera út af við tengdó sem sáu hótelrúmin sín í hyllingum. Valur gormur var svo farinn að skrækja á okkur klukkan hálf sjö í morgun en hey, við mössuðum daginn þreytt en ó-súr því þetta var svo þess virði.





Þess má geta að þessi skvísa hér að neðan var Miss TransGlobal 2006 og Leo DiCaprio missteig sig aðeins með að biðja hana um símanúmerið hennar...
Þessi er hjúkka á daginn og í þessu á kvöldin!





Þarna sjáið þið lookið sem ég var að tala um. Þetta var þjónninn okkar!
Jæja, en að merkilegri málum. Sonur minn litli tók fyrstu skrefin sín í dag að viðstöddu fjölmenni. Amma Hildur, afi Guðjón, ég og Atli fylgdumst með þegar litla hetjan tók heil 3 skref óstuddur á pallinum okkar hér úti í dag. Í gær föttuðum við upp á að láta hann labba hér úti með svona göngugrind á undan sér. Síðan þá er hann búinn að vera vitlaus í að komast út að æfa sig. Hann sofnaði klukkutíma fyrr í gærkvöldið því hann var uppgefinn eftir margra tíma labb hér úti í garði. Í dag er hann líka búinn að æfa sig í nokkra tíma og svo skyndilega sleppti hann sér bara og tók þessi þrjú skjálfandi skref og var svo hrikalega ánægður með sig þegar honum tókst þetta (kannski hafa fagnaðarópin í okkur foreldrunum og afa/ömmu haft eitthvað með það að gera!). Læt fylgja með nokkrar myndir af honum með kerruna/göngugrindina.


þriðjudagur, september 12, 2006

Það nýjasta

Fórum til Carmel og Monterey um helgina í boði tengdó. Geggjað að koma þangað, mjög falleg þorp við ströndina sunnan við San Fran. Skelltum okkur á þetta geggjaða sædýrasafn á svæðinu (sem við heimsóttum í vor) og bara tjilluðum og borðuðum góðan mat. Það er ótrúlegt hvað það er mikill hitamunur á svæðinu hér og þarna við sjóinn. Tekur okkur 1,5 tíma að keyra þetta og það munar kannski 15 gráðum, jafnvel 20. Einkennilegt. Hitinn hér í dag er alveg svakalegur. Atli stendur úti með slönguna og er að úða á krakkana sem eru úti að leika. Það er varla líft úti. Það hefur svo verið skipulögð hópferð í sundlaugina hjá Espe seinnipartinn til að kæla liðið niður.

Annars bara allt gott. Bíðum mjög spennt eftir kvöldinu í kvöld. Við erum ein af þeim sem erum sest fyrir framan kassann fimm mínútur í níu og tilbúin fyrir Rockstar. Ég svei mér held að Magni eigi eftir að hafa þetta. Mér finnst hann besti söngvarinn af þessum 4 sem eftir eru en mér finnst mikið vanta uppá sviðsframkomuna hjá honum. Hann er alltaf eins drengurinn, mér finnst það orðið pínu pínlegt. Það er alltaf skemmtun að horfa á hitt liðið performa, það kann þetta. Magni þarf smá hjálp með þennan hluta. Sjáum hvað setur í kvöld.....úff ég iða alveg hér í sófanum af spenningi....eru fleiri svona?

Læt fylgja með nokkrar myndir frá helginni.
Luv,
E

Í matarboði hjá Jeab og Vihn (frá Tælandi) með frönsku pari áður en haldið var í ferðina

Halldór að pota í sea cucumber

Týndi tvíburabróðirinn loksins fundinn!

Settið í Monterey
Val Pal að spóka sig um

Gaurarnir að leika

fimmtudagur, september 07, 2006

Alveg gomma af myndum

Valur að róla


Atli
Mamma Knutsson með ungann og unglinginn

Halldór að pósa James Dean lookinu

Ein artí mynd....verð að monta mig af henni en það var lærður ljósmyndari sem féll gjörsamlega fyrir henni!

Halldór í kirkju

Tengdó

Í fótbolta-myndatöku-stellingunni

Úti í garði að leika

Með afa Guðjóni

Með Díu sinni

Knútsson klanið að borða amerískar pönnslur með sýrópi á sunnudagsmorgni

Valur og Día nágranni að leika

Valur og stelpurnar í húsunum í kring...þær koma daglega að heilsa uppá okkur Val

Krakkarnir að glápa Esperanza og Sean vinir okkar

Valur á kagganum, alveg óstöðvandi gaman að fara hringinn á þessum!

Partners in crime...Halldór og Dante

Día vinkona Vals
Halldór Andri á góðu augnabliki

Ein leggjalöng!

Valur Björn fékk að fara í tívolítæki í fyrsta skipti og það var brjálað fjör, fórum 4 ferðir í röð!

Þyrstur eftir alla skemmtunina, það var svo mikið hlegið
Halldór fann sér eitthvað að dunda við á meðan litli bró nærðist

laugardagur, september 02, 2006

Allir í skóla...nema Valur

Jæja, jæja, jæja. Er ekki kominn tími til að blogga? Held það. Það er bara nóg að gera hjá okkur og verður framundan. Ferðalagið mikla frá LA og hingað heim gekk bara svaka vel. Lögðum af stað með yfirfullan bíl snemma morguns (prjónuðum á aftudekkjunum alla leið) og vorum um 8 tíma á leiðinni með 3 góðum stoppum. Strákarnir voru alveg rosalega góðir, heyrðist varla í þeim alla leiðina.

Íbúðin okkar var svo þvílíkt hrein og fínt þegar við komum. Við leigðum góðu fólki hana frá Spáni en fólk hér í kring var að lenda í ýmsustu vandræðum með fólkið sem það leigði til yfir sumarið. Við vorum blessunarlega laus við það. Halldór byrjaði svo í skólanum helgina eftir að við komum og er nú búinn að fara í skólann í 2 vikur. Hann er svaka ánægður með þetta allt saman.

Það er ný íslensk fjölskylda hér í garðinum. Þau eru bæði lögfræðingar í framhaldsnámi og eru með 3 krakka. 14 ára ungling, strák á sama aldri og Halldór (6 ára) og 5 ára stelpu. Þeir eru algjörir partners in crime og hanga saman öllum stundum. Svo er auðvitað nóg af krökkum hér út í garði öllum stundum til að leika við.

Valur er komin með vinkonu í íbúðinni við hliðina. Hún kemur til mín á hverjum degi til að leika sér við Val. Tveggja og hálfs árs stelpa sem heitir Día. Annars er íbúðin hjá okkur eins og félagsheimili barna. Það er alltaf fullt hús hér af krökkum úr garðinum....veit ekki hvort það sé af því við erum svo æðisleg eða að þau mega hvergi annars staðar leika öll sömul saman inni (flýja hitann).

Já það er búin að vera heitt veður hér undanfarið. Við höfum reynt að skreppa eins oft og við getum í sund hjá Esperönsu og Sean og við getum og er alltaf jafn gott að dýfa sér í kalda sundlaug þegar það er svona heitt.

Matarboðapakkinn heldur áfram og hefur ekkert verið slakað á í þeim efnum. Við vorum með nýju íslensku fjölskylduna í mat um daginn og búin að fara í nokkur boð sjálf. Fengum grannana okkar til að passa strákana í gærkvöldi og fórum í fondueboð hjá Espe og Sean í gærkvöldi ásamt pari frá Frakklandi. Skemmtum okkur konunglega og var þetta í fyrsta skipti sem við förum eitthvað tvö saman hér í Stanford. Það verður svo gerð bragarbót á því því tengdó er að koma hingað í dag i 2 vikur og vonumst við eftir að settið passi fyrir okkur....svolítið mikið.

Annars eru stóru fréttirnar héðan að Atli fékk tilboð um fasta vinnu hjá BCG (Boston Consulting Group) eftir útskrift eftir vinnu sumarsins. Já, drengurinn stóð sig bara vel og þeir vildu ráða hann. Við erum að skoða pakkann. BCG er alþjóðlegt fyrirtæki og er m.a. með skrifstofur í Köben, Stokkhólmi og Osló. Hann getur sóst eftir að vera fluttur þangað ef þannig stendur á. Við sjáum til hvað við gerum við þetta en samt gott að vera kominn með eitt gott tilboði í vasann.

Jæja, þetta er það helsta héðan. Jú, svo er ég auðvitað byrjuð í fjarnáminu í viðskiptafræðinni í HÍ og skemmti mér rosalega vel. Atli er bara með litlu dýrin á meðan ég sinni þessu en hann byrjar ekki í skólanum fyrr en í lok sept.

Set inn myndir á næstu dögum.
Love,
E