California here we come...again

miðvikudagur, mars 14, 2007

Hann á afmæli í dag....

Atli minn á afmæli í dag. Í tilefni dagsins á að skella sér í smá verslunarleiðangur og versla smá græjur fyrir kallinn. Okkur er svo boðið í mat með strákana í kvöld. Ætli ég reyni ekki að finna tíma í að baka eina afmælisköku til að taka með.

Veðrið hér er búið að vera hreint út sagt klikkað síðan í síðustu viku. Hátt upp í 30 stiga hiti og sól. Krakkarnir spranga hér um í garðinum á sundfötunum og við foreldrarnir kælum þau af og til með að sprauta yfir þau úr garðslögnunum. Það er aðeins farið að draga úr hitanum sem er fínt. Það er enn alveg nógu heitt auk þess sem það er heiðskírt.

Vinir okkar úr Lundi eru svo væntanlegir til okkar á föstudaginn. Það er því hörkufjör framundan en Atli er kominn í spring break á föstudaginn í 2,5 vikur:)

Jæja, set inn fleiri fréttir og myndir fljótlega.....það fer svo að draga til tíðinda hér á heimilinu....Köben eða Reykjavík....kannski í vikulok.