California here we come...again

fimmtudagur, júní 28, 2007

Útskrift

Karlinn í kuflinum.
Val og Hal fengu að fara með pabba sínum upp á svið að taka á móti skírteininu. Halldór var með rauðu útskriftarhúfuna sína þar sem hann var að útskrifast úr Kindergarten.
Skírteinið loksins í höfn.

sunnudagur, júní 17, 2007

Útskriftarhetjan

Þann 17. júní var Atli minn annar Íslendingurinn til að útskrifast með MBA próf frá Stanford University en prógramið er metið eitt af topp þremur MBA í heiminum. Hann er auðvitað snillingur og erum öll ákaflega stolt af drengnum okkar. Útskriftin var eins og í bíómynd, hrikalega flott og algjör upplifun að vera á staðnum og sjá svona útskrift. Ég set mynd af honum í útskriftarkuflinum inn þegar ég er búin að hlaða af myndavélinni.

Eftir útskriftina var sett í sjöunda gír, pakkað, þrifið og restin af dótinu okkar gefin vinum og nágrönnum. Halldóri þótti mjög erfitt að kveðja vini sína og var mikið grátið. Það kom honum eiginlega á óvart hvað erfitt var að segja bless.

Erum annars komin til Florida í HÖLLINA til mömmu og pabba. Þetta er ekkert smá glæsilegt hús í alla staði. Erum búin að vera hér með Lilju sys og Jónasi litla í 2 daga en þau fóru heim áðan. Fórum í Busch Gardens í gær (sem er eins og Disney World) og skemmtum við okkur eins og börnin....ef ekki betur. Ætlum að slappa af í dag, kannski kíkja á ströndina. Við Atli erum svo búin að leigja okkur bíl og taka hótel á Miami og ætlum að skella okkur bara tvö í 2 daga. Kominn tími á að komast eitthvað tvö út eftir rúm 2 ár.

Jæja, ætla að skella mér í sólina og grilla mig aðeins.