California here we come...again

laugardagur, maí 26, 2007

Sól, sól...

Nú fer aldeilis að styttast í flutninga hjá okkur hér. Ég kláraði síðasta prófið mitt í vikunni en Atli á viku eftir af skólanum hjá sér. Það er búið að pakka öllu sem á að fara í gám þannig að við náum að sjúga upp síðustu Stanfordminningarnar í rólegheitunum með léttvín í annari og sólina í hinni. Gámurinn kemur í næstu viku, ætlar að ferja drasl tveggja fjölskyldna yfir Atlantshafið, og keppumst við nú um að fylla gáminn af alls kyns kræsingum úr Crate and Barrel og öðrum amerískum gæðabúðum.

Það er degurdagur hjá okkur stelpunum í dag og er planið að skella okkur til San Jose nú upp úr hádegi og liggja þar á sundlaugarbakkanum með koteila og slúðurblöð í allan dag, fá okkur smá nudd og fara svo út að borða. Á meðan ætlar Atli að taka strákana í póker svo kellan hafi nú efni á að lifa lífinu aðeins :)

Já, það er ekki leiðinlegt að vera í Cali þegar shopping og sólböð eru á dagskránni á hverjum degi. Það er hins vegar svolítið skrýtið til þess að hugsa að við séum að fara eftir nokkrar vikur. Ævintýrið er hins vegar ekki búið hjá okkur því Danmörk tekur við og vonum við að það verði ekki síðra ævintýri. Við erum farin að hlakka mikið til að sjá fjölskyldu og vini, enda orðið pínu of langt síðan. Eitt ár!

Luv í bili.
E

2 Comments:

  • Frá einum sundlaugarbakka til þess næsta....... síjú í Flórída.
    L

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:27 e.h.  

  • Ohhh mig hefur lengi dreymt um að fylla gám frá Crate and barrel...!
    Vorum að koma frá Köben, það mun sko ekki væsa um ykkur þar. Yndislegt að vera þarna! Tók niður fullt af "glósum" fyrir þig Ella:)
    Hlakka til að fá ykkur heim.
    Kv, S&co

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home