California here we come...again

sunnudagur, júní 17, 2007

Útskriftarhetjan

Þann 17. júní var Atli minn annar Íslendingurinn til að útskrifast með MBA próf frá Stanford University en prógramið er metið eitt af topp þremur MBA í heiminum. Hann er auðvitað snillingur og erum öll ákaflega stolt af drengnum okkar. Útskriftin var eins og í bíómynd, hrikalega flott og algjör upplifun að vera á staðnum og sjá svona útskrift. Ég set mynd af honum í útskriftarkuflinum inn þegar ég er búin að hlaða af myndavélinni.

Eftir útskriftina var sett í sjöunda gír, pakkað, þrifið og restin af dótinu okkar gefin vinum og nágrönnum. Halldóri þótti mjög erfitt að kveðja vini sína og var mikið grátið. Það kom honum eiginlega á óvart hvað erfitt var að segja bless.

Erum annars komin til Florida í HÖLLINA til mömmu og pabba. Þetta er ekkert smá glæsilegt hús í alla staði. Erum búin að vera hér með Lilju sys og Jónasi litla í 2 daga en þau fóru heim áðan. Fórum í Busch Gardens í gær (sem er eins og Disney World) og skemmtum við okkur eins og börnin....ef ekki betur. Ætlum að slappa af í dag, kannski kíkja á ströndina. Við Atli erum svo búin að leigja okkur bíl og taka hótel á Miami og ætlum að skella okkur bara tvö í 2 daga. Kominn tími á að komast eitthvað tvö út eftir rúm 2 ár.

Jæja, ætla að skella mér í sólina og grilla mig aðeins.

3 Comments:

  • TIL HAMINGJU MEÐ ÚTSKRIFTINA ATLI!!
    Ekkert smá glæsilegt hjá þér að hafa klárað þennan áfanga. Við hér heima erum líka afar stolt af þér og vonum að gæfan fylgi ykkur elsku fjölskylda um ókomin ár.
    Njótið lífsins í FL og sérstaklega þess að eiga góðar stundir í Miami.
    Hlökkum til að sjá ykkur eftir nokkra:)
    Bkv, Soffa & co.

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:32 f.h.  

  • já, ég er sko sammála - hann Atli er náttlega snillingur á alla kanta!
    Erla

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:34 e.h.  

  • Til hamingju Atli og þið öll!!
    Við munum líklega ekki ná ykkur á Íslandi en það er nú lítið mál að skella sér til Köben í haust;)

    / Beta og co. í Barca

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:07 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home