California here we come...again

þriðjudagur, júlí 13, 2004

Ég fer í fríið, fer í fríið.....

Sorry hvað ég hef verið óiðin við skrif undanfarið en það hefur verið nóg að gera hér hjá okkur. Pabbi hans Atla kom í viku heimsókn og Soffa vinkona og Dísa hafa verið hjá okkur síðan hann fór. Við Halldór Andri komum svo heim í mánaða frí með þeim mæðgum. Við komum á föstudaginn (16. júlí) og ætlum við að vera til 13. ágúst. Atli kemur svo 26. júlí og verður heima þar til við förum út.

Verðum hjá mömmu og pabba á Hegranesinu en fyrir þá sem ekki vita er síminn þar 564 3458. Það verður sem sé hægt að ná í okkur þar.

Ummmm...hlakka til að sjá hið fagra Ísland aftur og ykkur öll!

sunnudagur, júlí 04, 2004

4th of July

Til hamingju Bandaríkjamenn með þjóðhátíðardaginn (en sá dagur er sem sé í dag)! Á eftir að komast að því hvort Kaninn haldi upp á daginn með svipuðu móti og við heima eða ekki. Einhvern veginn held ég samt að þetta verði frábrugðið, veit ekki af hverju, þeir þurfa bara að hafa allt öðruvísi hér en annarsstaðar. Okkur er boðið í þjóðhátíðarpartý í kvöld til kunningja Atla og er mér sagt að þar verði matur á boðstólnum, fullt af fjölskyldufólki með börn og frá húsinu verði hægt að sjá flugeldasýningu sem bærinn er með. Þar sem vinnandi fólk var svo óheppið að 4th of July lendir á sunnudegi þetta árið, gefa þeir bara frí í staðinn í vinnunni á morgun mánudag. Þetta fyrirkomulag þyrftum við að taka upp heima, verulega sniðugt.

Pabbi hans Atla kom til okkar síðasta þriðjudag. Við erum búin að gera svona hitt og þetta með honum, kíkja á þekkt söguleg svæði og söfn. Halldór varð hins vegar skyndilega veikur á miðvikudaginn, fékk rjúkandi hita sem er búinn að fara og koma síðan. Held hins vegar að hann sé orðinn fínn núna sem betur fer því Soffa og Dísa eru að koma á morgun. Við erum náttúrulega mjög spennt að sjá þær. Halldór hefur spurt á hverjum degi núna í 2 vikur eða svo hvort Dísa sé að koma í dag. Hann er búinn að bíða lengi eftir þessu. Svo veit hann að hann er að fara heim til Íslands og er alltaf að telja upp hverja hann ætlar að heimsækja þegar hann kemur heim. Hann er orðinn mjög spenntur fyrir þessu öllu saman sá stutti. Já og ég auðvitað líka!