California here we come...again

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Íbúðin farin

Vildi bara láta þá sem hugsanlega voru að spá í leigu á húsnæðinu okkar hér ...sorry...húsnæðið hefur nú þegar verið leigt út í heilu lagi allan þennan tíma. Það hafa nokkrir haft samband en þetta tók nokkrar klukkustundir eftir að íbúðin var skráð á leigu.

Annars er ég búin að kaupa miða heim 22. júní og út aftur 29. júlí. Vonandi verða þetta sóladagar á Íslandi.

Veðrið hér í dag var glæsilegt. Allir krakkarnir sem búa í garðinum voru úti í allan dag og var þetta því góður dagur hjá Halldóri Andra. Við Atli ruku til í góða veðrinu og keyptum okkur loksins grill. Grilluðum kjúlla í kvöld, drukkum rauðvín og fengum okkur eftirrétt. Svo er bara nóg að gera framundan. Er að fá vinkonu mína hana Esperönzu í lunch á morgun. Við Atli ætlum á smá djamm á föstudagskvöldið og skella okkur í þrítugsafmæli og svo höfum við boðið 4 pörum frá Argentínu í rosa grillveislu til okkar á laugardaginn. Svo er verið að reyna að troða inn dinner á sunnudaginn með íslensku fjölsyldunni hér í garðinum. Þegar helgin er liðin koma mamma og pabbi þannig að það er bara nóg að gera.

Læt hér fylgja með myndir af nokkrum krökkum í garðinum á laugardaginn þegar þau fóru á Easter Egg Hunt (þá er búið að fela nammi út um allan garð sem krakkarnir reyna að finna og setja í páskakörfuna sína).

Seinna,
E


mánudagur, apríl 17, 2006

Páskarnir

Vona að allir hafi átt gleðilega páska og gott frí. Fríið hjá okkur var bara helgin (laugardagur og sunnudagur) en við höfðum það mjög gott. Halldór Andri er reyndar búinn að vera í 9 daga fríi í skólanum sínum (með helgum) en byrjaði aftur í dag. Veðrið er allt að koma til en það hafa verið rosalegar rigningar hér undanfarið og lítið hægt að gera annað en að hoppa í pollum (sem við höfum gert svolítið af). Ég hef því lítið verið að skrifa á bloggið. Það koma orðið sólardagar inn á milli rigningardaganna en mér sýnist spáin vera að lagast, þeir spá sól núna á hverjum degi!

Á laugardaginn var Easter Egg Hunt í garðinum hjá okkur. Það var boðið upp á subbara og djús fyrir íbúa garðsins og þar á eftir fór allur krakkaskarinn að leita sér að nammi í páskakörfuna sína. Þetta var voða gaman. Í gær, páskasunnudag, fengum við mörg heimboðin. Við ákváðum að hitta hóp Íslendinga í San Fran og var það virkilega gaman. Við höfum verið svona 12-15 + börn og var þetta frábær hópur sem við munum gera meira af að hitta.

Mamma og pabbi koma svo til okkar í heimsókn í næstu viku. Koma 25. apríl og verða til 6. maí. Þau eru fyrstu gestirnir sem við tökum á móti í litla húsinu hér. Það verður gaman að fá loksins einhvern í heimsókn.

Heimferðin mín er að komast á hreint. Ég kem heim í kringum 20. júní og verð út júlí. Alti kemur hins vegar ekkert heim. Hann byrjar að vinna í LA í kringum 20. jún og verður alveg út ágúst. Við ætlum að leigja íbúðina okkar hér úti á meðan. Ég get leigt hana hjá housing office hér úti til sumarkennara en áður en ég skráin hana ætlaði ég að bjóða þeim sem hafa áhuga á að leigja. Ef ég get púslað saman einhverjum leigjendum þá gengur það upp. Þeir sem hafa áhuga hafið bara samband við mig á ehalldorsdottir@msn.com.

mánudagur, apríl 03, 2006

Myndir úr fríinu til OC og Palm Springs

Tveir hrikalega sætir!




Atli og Halldór á ströndinni í Laguna Beach í OC
Fjölskylda á ströndinni í Laguna
Halldór Andri í Laguna Beach
Valur að fá tönnslu - nagaði allt sem hann kom höndum yfir og fannst honum eldhúsáhöld einstaklega hjálpleg
In the lap of luxury in Palm Springs!
Slæmt case af pulluveiki (þegar rassinn verður samgróinn sófapullunni)

Feðgar að baða sig Ebony and Ivory (svart og hvítt)
Alltaf tími fyrir smá sopa
Valur er vatnsdýr eins og bróðir sinn
Reynt að ná nokkrum geislum
Höllin







Komin aftur til Orange County...Kobbi, Máni og Leó litli ásamt gestum
Tvær vinkonur með lítil kríli. Í heimsókn hjá Aline o

g family


Gamlir vinir, Halldór og Alec
Í heimsókn hjá Kolbeini, Junko, Mána og Leó